Trúnaðarmenn FF í framhaldsskólum eru umboðsmenn og fulltrúar stéttarfélagsins. Þeir tala máli þess og eru aðaltengiliðir við stjórn, samninganefnd og starfsmenn. Trúnaðarmenn fara með lögbundið og kjarasamningsbundið hlutverk á vinnustað.
Efni á vef FF um trúnaðarmenn er ætlað að vera stuðningur við störf trúnaðarmanna í framhaldsskólum.
Trúnaðarmenn geta ýmist beint fyrirspurnum um framkvæmd kjarasamnings og um ýmis réttindamál til formanns FF, fulltrúa FF eða til launafulltrúa KÍ. Almennum fyrirspurnum um efni kjarasamninga og réttindamál ber að beina til launafulltrúa KÍ sem starfar fyrir öll aðildarfélög sambandsins.
Trúnaðarmenn og fulltrúar kennara í samstarfsnefndum framhaldsskóla eru hvattir til að nýta sér þjónustu stéttarfélagsins og beðnir um að nota tölvupóstinn sem mest til að koma fyrirspurnum um efni og túlkun kjarasamninga á framfæri.