29. feb. 2008
Menntaráð Reykjavíkurborgar ætlar að efla tónlistarstarf í Fellaskóla með verkefni sem kallað hefur verið “músíkalskt par”. Það felst í samstarfi tónlistarskóla og grunnskóla, en sambærileg verkefni eru nú í gangi í 10 grunnskólum í samstarfi við 5 tónlistarskóla í borginni. Mikill áhugi er fyrir því að efla tónlistarstarf í Fellaskóla. Í fjölmenningarlegu samfélagi, líkt og í Fellahverfi, hefur sýnt sig að tónlistarkennsla hefur góð félagsleg áhrif og getur stuðlað að meiri samvinnu nemenda og skilningi þeirra í milli.
Lesa meira
29. feb. 2008
Barbara Ferster er leikskólakennari með meistarapróf frá Póllandi og hefur hún verið leikskólastjóri í leikskólanum Grænagarði á Flateyri frá árinu 2005.
Lesa meira28. feb. 2008
871 starfsmaður við kennslu í október 2006 var hættur eða hafði fengið leyfi frá störfum í október 2007. Brottfallið er 17,5%. Þetta er meira brottfall en mælst hefur í gagnasöfnun Hagstofu Íslands frá árinu 1997 eða í áratug. Í frétt frá Hagstofunni segir að brottfall úr kennslu sé hlutfallslega meira meðal þeirra sem ekki hafa kennsluréttindi og meðal þeirra sem eru í hlutastarfi.
Lesa meira
28. feb. 2008
Þorgerður Laufey Diðriksdóttir formaður Kennarafélags Reykjavíkur flutti erindi á samráðsfundi foreldra og borgaryfirvalda um manneklu í grunnskólum sem haldinn var 26. febrúar sl.
Lesa meira28. feb. 2008
Auglýst er eftir tilnefningum til hvatningarverðlauna Leikskólaráðs Reykjavíkur. Skilafrestur er til 1. apríl 2008.
Lesa meira
27. feb. 2008
Í Skólavörðunni er útdráttur úr fyrirlestri sem Pétur Gunnarsson rithöfundur hélt þann 30. janúar s.l. í tilefni af aldarafmæli kennaramenntunar.
Lesa meira27. feb. 2008
21. febrúar sl. komst Héraðsdómur Reykjavíkur að þeirri niðurstöðu að kennari sem starfað hefur um langt árabil við Landakotsskóla í Reykjavík eigi rétt til áframhaldandi aðildar að B-deild Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins þrátt fyrir að rekstrarfyrirkomulagi skólans hafi verið breytt frá og með 1. ágúst 2005 og skólinn sé nú rekinn sem einkahlutafélag eða sjálfseignarstofnun í eigu Kaþólsku kirkjunnar á Íslandi.
Lesa meira27. feb. 2008
Menntamálaráðherra hefur ákveðið að setja á fót starfshóp til þess að fjalla um áranguríslenskra nemenda í Pisa rannsókninni 2006. Starfhópnum er ætlað að vinna að gerð framkvæmdaáætlunar sem geti orðið farvegur fyrir markvissar umbætur í skólamálum á næstu árum. Ráðherra óskað í janúar sl. eftir viðbrögðum helstu hagsmunaaðila, þar með talið Kennarasambands Íslands, við niðurstöðum rannsóknarinnar. KÍ hefur nú sent ráðherra greinargerð sína um málið.
Lesa meira27. feb. 2008
Málþing um Olweusaráætlunina verður haldið í fundarsalnum Skriðu í Kennaraháskóla Íslands við Stakkahlíð í Reykjavík föstudaginn 29. febrúar kl. 9:00 til 16:30.
Lesa meira27. feb. 2008
Dagana 21.-24. maí 2008 verður haldin 10. norræna ráðstefnan um kennaramenntun. Markmið ráðstefnunnar að þessu sinni er að skoða tengsl kennaramenntunar og skólaþróunar.
Lesa meira27. feb. 2008
Fimmtudaginn 6. mars bjóða samtök launafólks og Jafnréttisstofa til ráðstefnu í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna. Ráðstefnan verður haldin í Rúgbrauðsgerðinni, Borgartúni 6, kl. 13-16:15.
Lesa meira27. feb. 2008
Lesa meira
25. feb. 2008
Miðvikudaginn 27. febrúar nk. kl. 16-18, verður haldinn fundur í BRÚ, umræðuvettvangi um skólamál. Margrét Birna Þórarinsdóttir kynnir PBS kerfið - stuðning við jákvæða hegðun og Guðlaug Erla Gunnarsdóttir kynnir hugmyndafræðina Uppeldi til ábyrgðar.
Lesa meira
25. feb. 2008
Mánudaginn 25. febrúar verður opið hús í Kennaraháskólanum við Stakkahlíð kl. 16-18.
Lesa meira20. feb. 2008
Launaþróun félagsmanna KÍ í framhaldsskólum hefur ekki fylgt launaþróun hefðbundinna viðmiðunarhópa hjá ríkinu á yfirstandandi samningstímabili og hafa framhaldsskólakennarar dregist umtalsvert aftur úr þeim í grunnlaunum.
Lesa meira19. feb. 2008
Námsmatsstofnun stendur fyrir opnum umræðufundi um PISA 2006 í dag, þriðjudag, á milli 13 og 15, í sal Námsmatsstofnunar Borgartúni 7a.
Lesa meira18. feb. 2008
„Við vörum við framkomnum hugmyndum Reykjavíkurborgar um að koma á fót fimm ára deildum við fjóra grunnskóla í Reykjavík næsta haust“ segir Björg Bjarnadóttir formaður Félags leikskólakennara.
Lesa meira18. feb. 2008
Samningar lausir hjá öllum félögum kennara á þessu ári.
Lesa meira
15. feb. 2008
Ólafur Proppé rektor Kennaraháskóla Íslands ritar grein í Morgunblaðið í dag um kennaranám til meistaragráðu. Þar fjallar Ólafur um meistaranám til kennarastarfsins og segir meðal annars að það sé alvarlegur misskilningur að halda því fram að kennurum yngstu barnanna nægi takmarkaðri, styttri eða minni menntun en hinum sem kenna þeim sem eldri eru. „Uppeldi og menntun, nám og kennsla eru afar flókin viðfangsefni sem krefjast vísindalegrar þekkingar og vinnubragða ekki síður en aðrar starfsgreinar þar sem krafist er meistaragráðu,“ segir rektor.
Lesa meira14. feb. 2008
Í dómi sem Hæstiréttur kvað upp 7. febrúar sl. er Grindavíkurbær dæmdur til að greiða leikskólastjóra við leikskóla í bænum tæplega 750 þúsund krónur ásamt dráttarvöxtum vegna vangoldins orlofs á fasta yfirvinnu á árunum 2000 til og með 2005.
Lesa meira
14. feb. 2008
Háskólinn á Akureyri og Kennaraháskóli Íslands halda utan um stórt rannsóknarverkefni á sviði menntunar til sjálfbærni um þessar mundir og óska eftir framhaldsskólum, grunnskólum og leikskólum til samstarfs. Háskólarnir benda á að frestur til að sækja um styrki úr þróunarsjóðum leik- og grunnskóla rennur út 3. mars nk.
Lesa meira14. feb. 2008
Kennurum krossbrá þegar frétt birtist á mbl.is síðdegis í gær um umsögn ASÍ um menntafrumvörpin. Þar rær sambandið á sömu mið og SÍS og borgarráð og gagnrýnir lengingu kennaramenntunar auk þess sem gagnrýnd er lögbinding kennaramenntunar hjá tveimur þriðju hlutum starfsmanna í leikskólum.
Lesa meira13. feb. 2008
Málþing haldið á vegum leikskóla Félagsstofnunar stúdenta 29. febrúar 2008 á Háskólatorgi.
Lesa meira13. feb. 2008
Viku- og tveggja vikna sumarbúðadvöl í Kanada býðst nú íslenskum vísindakennurum og nemendum þeirra á unglingsaldri.
Lesa meira13. feb. 2008
Aðalfundur FL verður haldinn á Grand Hóteli í Reykjavík 13. og 14. mars n.k. Fundurinn verður settur kl. 12:30 þann 13. mars.
Lesa meira12. feb. 2008
„Finnar gerðu meistarapróf frá háskóla að lágmarkskröfu fyrir grunnskólakennara strax árið 1979 - eða fyrir hartnær þrjátíu árum - og enginn fer í grafgötur um hversu vel finnskir skólar koma út úr alþjóðlegum könnunum“, segir Ólafur Proppé rektor Kennaraháskóla Íslands í bréfi til borgarráðs Reykjavíkur og Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Lesa meira11. feb. 2008
Ráðstefnan hefst með skráningu og afhendingu ráðstefnugagna kl. 8:45, laugardaginn 23. febrúar, en lýkur með léttum veitingum kl. 15:00.
Lesa meira6. feb. 2008
Vinningsnúmerið í happdrætti kjarakönnunar BSRB, BHM og KÍ er 110666.
Lesa meira
6. feb. 2008
Á næstu vikum eru í boði hjá Endurmenntun Háskóla Íslands ýmis námskeið sem henta vel fyrir grunn- og leikskólakennara sem og öðrum sem starfa með börnum og unglingum.
Lesa meira6. feb. 2008
Kennarar athugið! Málþinginu “Að vita meira og meira” sem halda átti 22. febrúar er frestað til vors vegna forfalla aðalfyrirlesara.
Lesa meira
5. feb. 2008
Kynningarnefnd Félags leikskólakennara hefur að undanförnu unnið að því í samvinnu við menntamálaráðuneyti, Samband íslenskra sveitarfélaga og samtökin Heimili og skóla að einn dagur á ári hverju verði sérstaklega tileinkaður leikskólanum og því starfi sem þar fer fram.
Lesa meira5. feb. 2008
Samræmd próf í íslensku og stærðfræði verða lögð fyrir nemendur í 4. og 7. bekk haustið 2008, sbr. 46. gr. laga nr. 66/1995 um grunnskóla.
Lesa meira5. feb. 2008
Síðdegismálþing Stofnunar stjórnsýslufræða og Félags forstöðumanna ríkisstofnana verður haldið þann 11. febrúar nk. kl. 15.05-17.00. Málþingið fjallar um nýjar leiðir í opinberri þjónustu; leiðir sem byggja á vali notenda og samkeppni milli þeirra sem veita þjónustuna.
Lesa meira
5. feb. 2008
SAFT heldur opið málþing í tilefni af Alþjóðlega netöryggisdeginum þann 12. febrúar nk. kl. 16-18 í Kennaraháskólanum.
Lesa meira4. feb. 2008
„Við verðum að hækka laun kennara“, sagði menntamálaráðherra á fundi sjálfstæðismanna sem sagt var frá í sjónvarpsfréttum í gær og formaður KÍ, Eiríkur Jónsson, fagnaði þessum orðum í sama fréttatíma. Þorgerður Katrín sagði kennaramenntunarfrumvarpinu ætlað að styrkja stöðu kennara og auka virðingu fyrir stéttinni, leikskólinn væri fyrsta skólastigið og því sjálfsagt að leikskólakennarar þyrftu einnig meistaragráðu. Sem kunnugt er hafa bæði borgarráð og Samband íslenskra sveitarfélaga gagnrýnt kennaramenntunarfrumvarpið, meðal annars á þeim forsendum að þá verði erfiðara að manna leik- og grunnskóla. Athygli vekur að umsagnir SÍS og borgarráðs skuli vera fullkomlega í blóra við afstöðu ráðherra, kennaramenntunarstofnana í landinu og síðast en ekki síst Kennarasambandsins en þess má geta að varaformaður KÍ rökstuddi lengingu kennaranáms á prenti löngu áður en umsagnir SÍS og borgarráðs voru lagðar fram.
Lesa meira
4. feb. 2008
Námskeiðið er ætlað öllu fagfólki í menntun og kennslu innan grunnskóla. Það verður haldið miðvikudaginn 13., föstudaginn 15. og mánudaginn 18. febrúar nk.
Lesa meira4. feb. 2008
Menntamálaráðuneytið býður leik- og grunnskólakennurum 15 e. viðbótarnám í íslensku, dönsku, ensku, stærðfræði og náttúrufræði. Skráningarfrestur er til 15. febrúar.
Lesa meira
4. feb. 2008
Markmiðið með degi leikskólans er m.a að gera þegna þjóðfélagsins betur meðvitaða um þýðingu leikskólakennslu fyrir börn og skapa jákvæða ímynd leikskólans. Með því móti beinist athygli þjóðarinnar að stöðu leikskólans, gildi hans fyrir þjóðarauð og alla menningu.
Lesa meira