Eftir mánuðum

31. mar. 2009

Kynning á framhaldsnámi við Menntavísindasvið Háskóla Íslands

Fimmtudaginn 2. apríl frá kl. 16.00-18.00 munu kennarar og nemendur kynna meistara- og doktorsnám við Menntavísindasvið Háskóla Íslands (fyrrum Kennaraháskóla Íslands) skólaárið 2009-2010. Kynningin fer fram í Skála í húsnæði Menntavísindasviðs við Stakkahlíð.
Lesa meira

30. mar. 2009

Umsókn um styrki úr Menntunarsjóði til blindrakennslu 2009

Umsóknarfrestur er til 15. apríl 2009. Umsóknum ásamt prófskírteinum úr háskólanámi og upplýsingum um starfsferil og upplýsingum um áformað nám, skal skila til Blindrafélagsins Hamrahlíð 17, 105 Reykjavík merktum „Menntunarsjóður til blindrakennslu“.
Lesa meira

27. mar. 2009

Ný vinnuumhverfisbóla - Vissir þú að...?

Vinnuumhverfisbóla aprílmánaðar er rauð og fjallar um siðareglur kennara og hvað þær segja um góðan starfsanda á vinnustað.
Lesa meira

27. mar. 2009

Ráðstefna um íslenska þjóðfélagsfræði 8. og 9. maí

Háskólinn á Akureyri stendur fyrir ráðstefnu 8. og 9. maí nk. Á ráðstefnunni verða kynntar fjölbreytilegar rannsóknir á íslensku þjóðfélagi frá sjónarhóli félagsfræði, mannfræði, stjórnmálafræði og skyldra greina. Ráðstefnunni er ætlað að skapa umræðuvettvang þjóðfélagsfræðinga sem starfa í háskólum, framhaldsskólum og við rannsóknir á öðrum vettvangi. Jafnframt mun ráðstefnan gefa nemendum á háskóla- og framhaldsskólastigi kost á því að kynnast og taka þátt í fræðastarfi þjóðfélagsfræðinnar.
Lesa meira

23. mar. 2009

Námskeið um útiskóla 8.-12. júní

Námskeið um útiskóla verður haldið í Bergen og nágrenni 8.-12. júní.
Lesa meira

19. mar. 2009

Ársþing Samtaka fámennra skóla 9. maí

Ársþing Samtaka fámennra skóla 2009 verður haldið í Stórutjarnaskóla í Þingeyjarsveit laugardaginn 9. maí nk og hefst kl 13:30. Yfirskrift þingsins að þessu sinni er: „Menntun á tímum uppgjörs og endurnýjunar: Samtök fámennra skóla 20 ára.“
Lesa meira

17. mar. 2009

FÉLAGSMENN ATHUGIÐ!

Vegna flutninga má búast við einhverri truflun á símsvörun og annarri starfsemi í Kennarahúsinu frá miðvikudegi til föstudags, þ.á.m. starfsemi sjóða. Öll þjónusta og afgreiðsla færist í samt horf nk. mánudag.
Lesa meira

17. mar. 2009

Ársfundir 12. og 13. mars voru vel sóttir og innihaldsríkir

Þann 12. og 13. mars sl. voru haldnir ársfundir Kennarasambandsins, skólamálaráðs og aðildarfélaga leik-, grunn- og framhaldsskólakennara. Auk hefðbundinna ársfundastarfa voru góðir gestir víða að úr samfélaginu fengnir til að flytja erindi um framkvæmd nýrra menntalaga, kjaramál, lífeyrismál, horfur í skólamálum næstu ár, hinn nýlega starfsendurhæfingarsjóð sem KÍ á aðild að og margt fleira.
Lesa meira

17. mar. 2009

Framhaldsskólakennarar hvetja stjórnvöld til dáða og vænta þess að þau skeri ekki niður í menntakerfinu

Fulltrúafundur Félags framhaldsskólakennara sem haldinn var 12. mars sl. samþykkti ályktun með heitinu: „Stöndum vörð um menntun og skólastarf!“ Þar er meðal annars bent á að niðurskurður bitnar oft þyngst á þeim sem minnst mega sín. Þá er nefnt mikilvægi þess að framhaldsskólar geti opnað dyrnar fyrir öllum þeim sem vilja bæta menntun sína og styrkja hæfni sína og stöðu á vinnumarkaði.
Lesa meira

16. mar. 2009

Kennaramenntun í Nova Scotia

Dr. Jeff Orr, yfirmaður kennaradeildarinnar við St. Francis Xavier University í Nova Scotia í Kanada, heldur fyrirlestur á Menntavísindasviði fimmtudaginn 19. mars næstkomandi.
Lesa meira

16. mar. 2009

Útilegukort, veiðikort og afsláttarávísanir í flugferðir

Orlofssjóður hefur gert samninga um sölu afsláttarávísana við þrjá aðila til viðbótar þeim sem auglýst voru í nýútkomnu Ferðablaði sjóðsins.
Lesa meira

10. mar. 2009

Launamiðar ekki sendir heim

Kennarasamband Íslands hefur ákveðið að senda ekki afrit launamiða heim til félagsmanna. Þetta á við launamiða sjúkrasjóðs og endurmenntunarsjóða aðildarfélaganna. Launamiðar hafa verið sendir rafrænt til skattstjóra og allar upphæðir eru forskráðar á framtöl þeirra sem fengið hafa greiðslur úr sjóðum KÍ.
Lesa meira

10. mar. 2009

Ársfundur Félags grunnskólakennara 12. mars 2009

Sjöundi ársfundur FG verður haldinn fimmtudaginn 12. mars á Hótel Loftleiðum í Reykjavík.
Lesa meira

10. mar. 2009

Fulltrúafundur Félags framhaldsskólakennara 12. mars 2009

Fimmtudaginn 12. mars verður fulltrúafundur FF haldinn í þingsal 1 á Hótel Loftleiðum í Reykjavík. Fulltrúafundurinn stendur frá 9:00 til 15:45.
Lesa meira

10. mar. 2009

Ársfundur Félags leikskólakennara 12. mars 2009

Ársfundur FL verður haldinn 12. mars nk. á Hótel Loftleiðum í Reykjavík. Samkvæmt lögum FL skal boða til ársfundar þau ár sem ekki er aðalfundur. Á ársfundi skal m.a. fjalla um starfsemi félagsins og starfsáætlun auk þess sem reikningar eru lagðir fram.
Lesa meira

6. mar. 2009

Kennarahúsið verður lokað næstkomandi föstudag og mánudag

Félagsmenn athugið! Kennarahúsið verður lokað á föstudag og mánudag, 6. og 9. mars vegna framkvæmda á 1. hæð hússins. Skrifstofan opnar aftur kl. 9, þriðjudaginn 10. mars.
Lesa meira

6. mar. 2009

Kennarar á Kýpur vekja athygli á 8. mars

Samtök tyrknesk-kýpverskra kennara, KTÖS, hafa útbúið veggspjald í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna fyrir friði og jafnrétti þann 8. mars.
Lesa meira

5. mar. 2009

Alþjóðadagur kvenna 8. mars

Kennarasamband Íslands hvetur félagsmenn sem eru staddir á höfuðborgarsvæðinu um helgina til að taka þátt í dagskrá 8. mars.
Lesa meira

4. mar. 2009

Skólaheimsóknir til Kanada

Ferðaskrifstofan Vesturheimur sf skipuleggur heimsóknir í skóla og menningarstofnanir í Manitoba í Kanada.
Lesa meira




Aukaval


Fagfélög


Leturstærð og tungumál


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli