Árið 2011 ákváðu FF og FS að fara í samstarf við Guðrúnu Ragnarsdóttur um framhalds- og viðbótarrannsókn á líðan og starfsumhverfi félagsmanna KÍ í framhaldsskólum sem var lögð fyrir kennara, náms- og starfsráðgjafa og stjórnendur í byrjun janúar 2012.
Tilgangur rannsóknarinnar er að afla upplýsinga um:
Spurningalisti rannsóknarinnar skiptist í fjóra hluta, sameiginlegan og aðskilda hluta fyrir kennara, náms- og starfsráðgjafa og stjórnendur. Vísindasiðanefnd veitti leyfi fyrir rannsókninni og hún var tilkynnt til Persónuverndar. Rannsóknin er nafnlaus og fyllsta trúnaðar er gætt við meðferð og úrvinnslu gagna. Rannsóknin var kynnt í bréfum FF og FS til skólameistara og trúnaðarmanna í desember 2011. Skólameistarar veittu tíma fyrir fyrirlögnina á fyrsta kennarafundi í janúar 2012 og trúnaðarmenn dreifðu spurningalistunum til félagsmanna. Niðurstöðurnar sýna m.a. dalandi starfsánægju og lengri vinnudag. Stórir nemendahópar eru mikið og vaxandi vandamál í skólunum og eru mikil tengsl á milli þess hversu andlega erfitt kennarar telja starf sitt vera og stærð nemendahópa. Minna svigrúm er fyrir hendi til að sinna nemendum með sérþarfir og streita í starfi hefur aukist töluvert miðað við fyrri rannsóknir. Sex af hverjum 10 félagsmönnum finna fyrir streitu í starfi og þar af finna náms- og starfsráðgjafar fyrir mestri streitu.
Hér er grein Guðrúnar Ragnarsdóttur um aðferðafræði rannsóknarinnar árið 2012 og einnig fyrri rannsóknir:
Niðurstöður rannsóknarinnar verða flokkaðar eftir þemum og efninu gerð skil í bæklingum sem Guðrún Ragnarsdóttir annast. Bæklingarnir verða aðgengilegir hérna.
Út eru komnar niðurstöður rannsókna á líðan og starfsumhverfi framhaldsskólakennara sem voru unnar af Guðrúnu Ragnarsdóttur lýðheilsufræðingi, framhaldsskólakennara og kennslustjóra í Borgarholtsskóla í samstarfi við Félag framhaldsskólakennara. Fyrri rannsóknin var lögð fyrir vorið 2008 á miklum þenslutímum í íslensku samfélagi. Tilgangur seinni rannsóknarinnar sem fór fram vorið 2010 var að kanna áhrif efnahagskreppunnar sem hófst haustið 2008 á líðan og starfsumhverfi framhaldsskólakennara og viðhorf þeirra til framhaldsskólalaganna sem Alþingi samþykkti sumarið 2008. Í báðum rannsóknunum voru lagðir spurningalistar fyrir framhaldsskólakennara, þátttakendur í fyrri rannsókninni voru 901 og 892 í þeirri síðari.