
30. okt. 2009
Félag kennara í kristnum fræðum, siðfræði og trúarbragðafræðum stendur fyrir ráðstefnu í tilefni af tíu ára afmæli félagsins laugardaginn 7. nóvember 2009 í húsakynnum menntavísindasviðs Háskóla Íslands. Ráðstefnan ber yfirskriftina Trúarbragðafræðsla í skólum - hvert stefnum við? Ráðherra mennta- og menningarmála, Katrín Jakobsdóttir, mun ávarpa ráðstefnuna og aðalfyrirlesarar eru dr. Robert Jackson og dr. Sigurður Pálsson. Ráðstefnan er þátttakendum að kostnaðarlausu.
Lesa meira
27. okt. 2009
Í frétt frá því í gær, 26. október, gleymdist að nefna að frítt er á málþingið Föruneyti barnsins en nauðsynlegt er að skrá sig.
Lesa meira
26. okt. 2009
Dagana 29. - 30. október verður haldið í Skriðu v/Stakkahlíð málþing menntavísindasviðs Háskóla Íslands í samstarfi við menntamálaráðuneytið, Kennarasamband Íslands, Mennta- og Leikskólasvið Reykjavíkurborgar, Félag framhaldsskóla og samtökin Heimili og skóla. Dr. Charles Desforges frá Háskólanum í Exeter er aðalfyrirlesari en hann hefur meðal annars fjallað mikið um þá auðlind sem felst í foreldrum og hugsanlega verið vannýtt hingað til. Frú Vigdís Finnbogadóttir er sérstakur heiðursgestur þingsins og mun flytja stutt ávarp við setningu þess. Dr. Jón Torfi Jónasson forseti menntavísindasviðs setur þingið og Katrín Jakobsdóttir ráðherra mennta- og menningarmála flytur einnig ávarp við setninguna.
Lesa meira
23. okt. 2009
Skólamálaráð og skólamálanefndir KÍ létu aldeilis hendur standa fram úr ermum sl. þriðjudag, 20. október. Þá var haldinn, af þeim og fyrir þau, fræðslufundur með miklum fjölda af örstuttum erindum um hin ýmsu mál sem tengjast verkefnasviði nefndanna og ráðsins. Yfirskrift fundarins var Fræðslufundur um starf KÍ og aðildarfélaga að skóla- og menntamálum. Til fundarins mættu, auk fyrrgreindra, starfsmenn menntamálaráðuneytis, SÍS og kennarahúss til að upplýsa um stöðu mála, hver í sínum málaflokki. Var það mat manna eftir fundinn að hann hefði verið upplýsandi og úr nógu að moða að honum loknum.
Lesa meira22. okt. 2009
Haustnámskeið Textílseturs í Kvennaskólanum á Blönduósi standa yfir frá 24. – 27. október. Af því tilefni verður boðið upp á fyrirlesturinn Flækjur og fínerí - prjónamenning á vefnum nk. laugardag og þriðjudaginn 27. október verður opið hús með spjalli um prjón, hekl, gimb, spuna og fleira.
Lesa meira22. okt. 2009
Leikskólinn Óskaland í Hveragerði er annar tveggja vinnustaða sem hlaut nýverið viðurkenningu vegna vinnuverndarstarfs sem þykir til fyrirmyndar. Viðurkenningin var veitt á ráðstefnu Vinnuverndarvikunnar 2009, Áhættumat fyrir alla, sem haldin var á Grand hóteli 20. október. Við óskum Óskalandi innilega til hamingju og erum stolt af okkar fólki!
Lesa meira
22. okt. 2009
Félag leikskólakennara, Heimili og skóli og Samtök atvinnulífsins efna til opins málþings um barnvænt samfélag þriðjudaginn 10. nóvember á Grand Hótel Reykjavík. Málþingið fer fram í Gullteig og stendur frá kl. 8-11. Markmið með málþinginu er að skapa tækifæri fyrir hagsmunaaðila til að ræða um barnvænt samfélag út frá ólíkum sjónarhornum. Sjá meðfylgjandi auglýsingu.
Lesa meira
22. okt. 2009
Heimili og skóli og SAMFOK efna til opins fundar um foreldra sem auðlind í skólastarfi. Fundurinn verður haldinn á Grand hóteli fimmtudaginn 29. október 2009 klukkan 20:00. Charles Desforges, prófessor frá háskólanum í Exeter, heldur erindi um foreldra sem auðlind í skólastarfi.
Lesa meira
22. okt. 2009
Á fræðslufundi ADHD samtakanna í kvöld, fimmtudaginn 22. október, mun Kristín Lilliendahl aðjúnkt við menntavísindasvið HÍ halda erindið „Reynsla nemenda með ADD af grunnskólagöngu sinni“. Kristín byggir fyrirlestur sinn á rannsókn á reynslu nemenda með athyglibrest án ofvirkni. Þá munu fjórar stúlkur með ADD segja frá grunnskólagöngu sinni.
Lesa meira
12. okt. 2009
Nordplus styrkir samstarf leik-, grunn- og framhaldsskóla við skóla á Norðurlöndum og í Eystrasaltslöndunum.
Lesa meira12. okt. 2009
Umsóknarfrestur um meistaranám við Menntavísindasvið á vormisseri 2010 er 15. október. Í boði er fjölbreytt nám í öllum þremur deildum sviðsins.
Lesa meira
12. okt. 2009
Vinnuumhverfisbóla októbermánaðar er um næringu og vinnustaðinn.
Lesa meira12. okt. 2009
Í frétt frá menntamálaráðuneytinu kemur fram: Mennta- og menningarmálaráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Sprotasjóði leik-, grunn- og framhaldsskóla. Hlutverk sjóðsins er að styðja við þróun og nýjungar í skólastarfi.
Lesa meira
9. okt. 2009
Málþing um vinnuvistfræði í grunnskólum verður haldið mánudaginn 19. október frá kl. 13:00 til 17:00 í Norræna húsinu. Heiti málþingsins er Skólinn - góður vinnustaður! Eins og sjá má í dagskrá er um marga áhugaverða fyrirlestra að ræða.
Lesa meira
7. okt. 2009
Dagana 29. og 30. október verður málþing Menntavísindasviðs haldið. Málþingið stendur frá 14:00 til 17:00. Ávörp flytja Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra og frú Vigdís Finnbogadóttir.
Lesa meira
5. okt. 2009
Í dag er Alþjóðadagur kennara haldinn hátíðlegur um allan heim. Tökum öll þátt í deginum og fögnum honum á okkar vinnustöðum. Að forgöngu UNESCO er 5. október sérstaklega helgaður kennurum og þennan dag nota þeir samtakamátt sinn til að tryggja að hugað sé að þörfum barna fyrir menntun í nútíð og framtíð. Um leið er 5. október tákn þess að við kunnum að meta mikilsvert framlag kennara til menntunar, framþróunar samfélaga og þroskunar einstaklinga. Yfirskrift dagsins í ár er þessi: Sköpum framtíð: Fjárfestum í kennurum án tafar.
Lesa meira