
26. nóv. 2009
Nokkur eldri ferðablöð Orlofssjóðs eru nú aðgengileg á síðu ki.is og þar undir er einnig ferðablaðið 2009.
Lesa meira
26. nóv. 2009
Stjórn KÍ ákvað á fundi sínum þann 20. nóvember sl. lækkun félagsgjalds til Kennarasambands Íslands. Þannig mun félagsgjald til KÍ lækka frá og með 1. janúar 2010 úr 1,55% af grunnlaunum niður í 1%.
Lesa meira26. nóv. 2009
Laugardaginn 28. nóvember nk. verður haldið námskeið um Sáttmála Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks og mánudaginn 30. nóvember nk. verður haldið námskeiðið Barnavernd: skipulag, vinnsla og samstarf við aðra faghópa.
Lesa meira
25. nóv. 2009
Stjórn Kennarafélags Reykjavíkur hefur ályktað um þá niðurstöðu Þjóðfundarins í Laugardalshöll 14. nóv. sl. að setja menntamál í fyrsta sæti í framtíðarsýn þjóðarinnar.
Lesa meira
23. nóv. 2009
Núna nálgast fyrsti desember óðfluga og þangað til geta félagsmenn nálgast upplýsingar um annar- eða persónuuppbót á heimasíðu ki.is.
Lesa meira20. nóv. 2009
Samkomulag KÍ/framhaldsskóla og fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs um breytingar og framlengingu á kjarasamningi vegna félagsmanna KÍ í framhaldsskólum. Samkomulagið var undirritað 16. nóvember sl. með fyrirvara um samþykki félagsmanna KÍ í framhaldsskólum. Forsendur og markmið samkomulagsins byggja á stöðugleikasáttmála aðila vinnumarkaðar og stjórnvalda frá 25. júní s.l. Efni samkomulagsins er á sömu nótum og kjarasamningar annarra s.s. um gildistíma og um hækkun launataxta lægstu launa. Kjörstjórn KÍ hefur hafið undirbúning fyrir rafræna allsherjaratkvæðagreiðslu.
Lesa meira
18. nóv. 2009
Föstudaginn nk. 20. nóvember byrjar Orlofssjóður aftur að selja veiðikortið. Nánari upplýsingar eru á www.veidikortid.is. Hver félagsmaður getur keypt eitt veiðikort.
Lesa meira18. nóv. 2009
Í tilefni af 20 ára afmæli Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna stendur rannsóknastofa í bernsku- og æskulýðsfræðum BÆR á Menntavísindasviði Háskóla Íslands fyrir dagskrá mánudaginn 23. nóvember. Prófessorarnir Gunnar Finnbogason og Guðrún Kristinsdóttir flytja ávörp um réttindi og málefni barna. Kynnt verða sjáfboðaliðaverkefni sem kennaranemum gefst kostur á að taka þátt í. Þau felast annars vegar í nýrri svarþjónustu fyrir börn og unglinga heyrumst.is sem Barnaheill stendur fyrir og hins vegar í verkefninu Félagsvinur á vegum Rauða Kross Íslands. Þá verða sýndar stuttmyndir um tjáningu eftir nemendur í 8. og 9. bekk í Austurbæjarskóla.
Lesa meira
17. nóv. 2009
Í september 2009 var tekinn í notkun nýr bústaður við Ásabyggð 34 á Flúðum. Bústaðurinn er 83m² og skiptist í þrjú svefnherbergi, stofu, eldhús með borðkróki og baðherbergi með sturtu. Húsið er mjög vel búið húsmunum og er þar m.a. útvarp/geislaspilari, sjónvarp, DVD, þvottavél og gasgrill. Einnig er heitur pottur og stór verönd við húsið.
Lesa meira
16. nóv. 2009
Menntamál voru í fyrsta sæti af þeim níu meginþemum sem þjóðfundurinn 2009 valdi á laugardaginn til að vísa veginn til framtíðar. Átján þemasetningar um framtíðarsýn í menntamálum voru settar fram á fundinum, afrakstur samræðu 144 þjóðfundarfulltrúa sem aftur hvíldi á fyrri samræðu allt að 1500 fulltrúa. Hér má lesa setningarnar um framtíðarsýnina.
Lesa meira16. nóv. 2009
Dagur íslenskrar tungu er haldinn hátíðlegur um allt land í dag með ýmsum hætti. Þetta er í fjórtánda sinn sem þjóðin fagnar með Jónasi á fæðingardegi hans 16. nóvember og hugsar með væntumþykju til tungumálsins síns og hvers það er megnugt.
Lesa meira
13. nóv. 2009
3. tölublað fréttabréfs FF var að koma út. Mikið af áhugaverðu efni er í fréttabréfinu en þar er m.a. fjallað um endurnýjun kjarasamninga KÍ/FF, trúnaðarmannanámskeið og fulltrúafund á næsta ári og tilraunasamningar um ný framhaldsskólalög.
Lesa meira
13. nóv. 2009
Árið 2009 er ár skapandi hugsunar og nýsköpunar í Evrópu. Þar sem Ísland fer með formennsku í norrænu ráðherranefndinni á þessu ári hefur mennta- og menningarmálaráðuneytið ákveðið að standa fyrir þriggja daga alþjóðlegri ráðstefnu, 2. – 4. desember 2009, á Grand Hótel Reykjavík. Ráðstefnan ber yfirskriftina Skapandi kraftur í höndum ungs fólks og er haldin í samstarfi við ýmsa erlenda aðila. Markmið hennar er vekja athygli á skapandi vinnu í höndum ungs fólks og hvernig menntakerfi geta stutt við slíkt starf.
Lesa meira
13. nóv. 2009
Mimi Bjerkestrand hefur líklega brotið blað í sögunni með kosningu sinni til formennsku Utdanningsforbundet þann 1. nóvember sl., að minnsta kosti vitum við ekki til þess hér í Kennarahúsinu að leikskólakennari hafi áður gegnt embætti formanns í landssamtökum kennara neins staðar í heiminum. Kosningin var hörkuspennandi og það gat ekki verið mjórra á mununum en Mimi hlaut 97 atkvæði og mótframbjóðandinn Haldis Holst, sem kemur úr grunnskólageiranum, 95 atkvæði. Alls kusu 192 og enginn skilaði auðu.
Lesa meira
13. nóv. 2009
Þann 27. nóvember n.k. verður námskeið í húsakynnum Námsmatsstofnunar Borgartúni 7a um matstækið SFA. Námskeiðið er ætlað kennurum, sérkennurum og öðru fagfólki sem starfar með 6-12 ára nemendum með sérþarfir af ýmsum toga. Fjallað verður um helstu einkenni og notagildi matstækisins, hugmyndafræðin kynnt og farið ítarlega í fyrirlögn og úrvinnslu. Þátttakendur fá þjálfun í að túlka matsniðurstöður, vinna úr upplýsingum, skrá markmið nemandans og nýta þau í áætlanagerð. Skráning er til 17. nóvember.
Lesa meira
13. nóv. 2009
Í tilefni af degi íslenskrar tungu, mun fagráð í íslensku í samvinnu við samtök eldri borgara í Kópavogi standa fyrir dagskrá tengdri Jónasi Hallgrímssyni með upplestri og söng í matsalnum í aðalbyggingu menntavísindasviðs HÍ við Stakkahlíð. Mætum öll kl. 12.00 í Fjöru og eigum saman góðar fjörutíu mínútur.
Lesa meira
12. nóv. 2009
Fimmtudaginn 19. nóvember nk. verður haldin önnur ráðstefnan af þremur um skólastefnuna Skóli án aðgreiningar. Að þessu sinni er heitið Áskoranir og hindranir - Kastljósi beint að starfsfólki í skólasamfélaginu. Ráðstefnan hefst kl. 13:15 og henni lýkur kl. 16:30. Hún verður haldin í húsnæði Menntavísindasviðs Háskóla Íslands við Stakkahlíð.
Lesa meira
11. nóv. 2009
Faghópur leikskólasérkennara og Faghópur listgreinakennara í leikskólum halda saman ráðstefnu í Salnum í Kópavogi fimmtudaginn 19. nóvember kl. 13:00 til 16:00. Ráðstefnugjald er 3.000 kr. Ráðstefnustjóri er Ingibjörg Kristleifsdóttir varaformaður Félags leikskólakennara.
Lesa meira
10. nóv. 2009
Föstudaginn 13. nóvember verður haldið málþing í Rauða húsinu á Eyrarbakka undir heitinu Alþýðufræðsla á Íslandi í 120 ár. Málþingið er sett kl. 10:00 og því lýkur kl. 16:30 en að því loknu er boðið upp á léttar veitingar. Málþingið er öllum opið en síðasti skráningardagur er þriðjudagurinn 11. nóvember.
Lesa meira
10. nóv. 2009
Rannsóknarstofa um þroska, mál og læsi við Menntavísindasvið Háskóla Íslands hefur nú starfað í rúmt ár. Af því tilefni verður opið hús í húsakynnum hennar í E-204 (Enni) v/Stakkahlíð þann 12. nóvember frá kl. 14 til 17. Þeir sem að stofunni standa munu kynna á veggspjöldum nokkur þeirra rannsóknar- og þróunarverkefna sem unnið er að um þessar mundir og spjalla við gesti. Boðið verður upp á léttar veitingar.
Lesa meira
9. nóv. 2009
Ef fjárlagafrumvarpið 2010 verður samþykkt óbreytt er framhaldsskólunum gert að standa sjálfir straum af 40% af kostnaði vegna fleiri nemenda í forgangshópum (nemendur með fötlun og nemendur undir lögaldri). Einnig mun fjarnám og kvöldskólanám skerðast um helming. Millifærslur koma til með að bitna illa á skólum sem búa við þröngan húsakost. Þetta er meðal þess sem boðað er í fjárlagafrumvarpi 2010 eins og það snýr að framhaldsskólum.
Lesa meira
9. nóv. 2009
Ráðgjöf á sviði starfsendurhæfingar er ný þjónusta sem er samvinnuverkefni stéttarfélaga og Virk, Starfsendurhæfingarsjóðs. Hlutverk Starfsendurhæfingarsjóðs er að draga markvisst úr líkum á því að launafólk hverfi af vinnumarkaði vegna varanlegrar örorku. Það er m.a. gert með því að auka virkni og efla endurhæfingu og önnur úrræði. Sjá nánari upplýsingar um Starfsendurhæfingarsjóð á www.virk.is.
Lesa meira
6. nóv. 2009
Rannsóknir hafa sýnt að vinnustaðir sem stuðla að meiri hreyfingu starfsfólks eru meðal annars líklegri til að hafa þrekmeira og hraustara starfsfólk, aukna starfsánægju, betri starfsanda og öflugri liðsheild, færri veikindadaga starfsfólks og minni starfsmannaveltu en aðrir vinnustaðir.
Lesa meira5. nóv. 2009
... hefur verið gefin út.
Lesa meira5. nóv. 2009
Fræðslufundur skólamálaráðs KÍ og skólamálanefnda aðildarfélaga var haldinn 20. október sl. og er efni frá fundinum aðgengilegt á vefnum.
Lesa meira5. nóv. 2009
... var haldið 2. nóvember sl. Þar var meðal annars rætt um möguleika skóla og sveitarfélaga til þess að halda upp og jafnvel auka gæði og þjónustu í skólastarfi í kreppunni. Meðal framsögumanna á ráðstefnunni voru fjórir formenn aðildarfélaga KÍ. Það voru Björg Bjarnadóttir, formaður FL, Ólafur Loftsson, formaður FG, Sigrún Grendal, formaður FT og Kristinn Breiðfjörð, formaður SÍ.
Lesa meira