
30. des. 2008
Skólaþróunarsvið hug- og félagsvísindadeildar Háskólans á Akureyri stendur fyrir fræðslufundum á yfirstandandi skólaári. Fundirnir eru klukkutíma langir, hefjast kl. 16:30 í Þingvallastræti 23 á Akureyri og eru öllum opnir. Næsti fundur er 15. janúar nk. en þá segir Dagbjört Ásgeirsdóttir frá meistaraprófsverkefni sínu „Þegar tungumálið kemur, þá kemur allt.“
Lesa meira
30. des. 2008
Launagreiðendur og félagsmenn, athugið! Þann 1. janúar 2009 lækkar félagsgjald til KÍ úr 1,6% í 1,55% af föstum launum fyrir dagvinnu. Frá og með 1. janúar eiga vinnuveitendur að greiða framlag til Fjölskyldu- og styrktarsjóðs beint til KÍ samanber bréf sem sent var fyrr í þessum mánuði. Vegna nýgerðra kjarasamninga koma leiðréttingar á persónuuppbót leikskólakennara og annaruppbót tónlistarskólakennara.
Lesa meira
29. des. 2008
Félagsmenn athugið! Endurmenntunarsjóðir og sjúkrasjóður verða lokaðir mánudaginn 5. janúar og þriðjudaginn 6. janúar nk. vegna flutninga í tengslum við framkvæmdir í Kennarahúsinu. Einnig má gera ráð fyrir truflunum á símasambandi og annarri þjónustu í húsinu í nokkra daga vegna þessa.
Lesa meira
29. des. 2008
Níu bæklingar útgefnir af KÍ litu dagsins ljós á árinu sem er að líða. Með þessari útgáfu verður ýmislegt efni sem varðar félagsmenn Kennarasambandsins aðgengilegra en verið hefur.
Lesa meira
29. des. 2008
Fimm nýjar greinar eru komnar á vef Netlu - veftímarits menntavísindasviðs Háskóla Íslands. Áskrift að tímaritinu er ókeypis.
Lesa meira
23. des. 2008
Kennarasamband Íslands óskar félagsmönnum sínum og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.
Lesa meira
23. des. 2008
JÓLA OPNUN OG BREYTTUR OPNUNARTÍMI °°°°° JÓLA OPNUN OG BREYTTUR OPNUNARTÍMI
Lesa meira
23. des. 2008
Fyrir nokkrum árum ákvað stjórn Kennarasambands Íslands að hætta að senda út jólakort en láta þess í stað nokkurt fé af hendi rakna til góðgerðarstarfs í þágu barna sem eiga um sárt að binda vegna veikinda, fátæktar eða af öðrum ástæðum.
Lesa meira
23. des. 2008
Menntamálaráðuneytið hefur endurskoðað kafla um harmoniku í aðalnámskrá tónlistarskóla vegna ábendinga og athugasemda sem ráðuneytinu hefur borist.
Lesa meira
22. des. 2008
Tónlistarskólakennarar og leikskólakennarar gengu til atkvæðagreiðslu um kjarasamninga nýverið og lauk henni 21. desember. Niðurstöður liggja nú fyrir.
Lesa meira
19. des. 2008
Vegna umræðu um ofurlaun verkalýðsforystunnar vill undirritaður upplýsa að öll laun á skrifstofu Kennarasambandsins taka mið af kjarasamningum sem Kennarasamband Íslands gerir við viðsemjendur sína.
Lesa meira17. des. 2008
Nauðsynlegt er að verja menntun og skólastarf fyrir áföllum og við þær erfiðu aðstæður sem eru framundan er mikilvægara en nokkru sinni fyrr að skólar standi opnir öllum sem þangað vilja leita. Þetta kemur meðal annars fram í ályktun sem Félag framhaldsskólakennara sendi frá sér í dag.
Lesa meira15. des. 2008
Hádegisfyrirlestraröð Rannsóknastofu í vinnuvernd (RIV) þessa önnina er lokið en hægt er að nálgast glærur úr fyrirlestrum á heimasíðu RIV (www.riv.hi.is) sem og hlusta á upptökur þeirra.
Lesa meira
12. des. 2008
Atkvæðagreiðsla um framlengingu og breytingar á kjarasamningum ofangreindra félaga fer fram með rafrænum hætti á netinu.
Lesa meira
11. des. 2008
9. desember sl. undirrituðu Félag leikskólakennara og Félag tónlistarskólakennara samkomulag við Launanefnd sveitarfélaga (LN) um framlengingu og breytingar á kjarasamningi leikskólans og tónlistarskólans. Samningunum fylgir yfirlýsing um vilja aðila til þess að leggja sitt af mörkum til að víðtækri sátt um launa- og kjarastefnu til ársins 2010 verði náð.
Lesa meira4. des. 2008
Um 300 leikskólakennarar sóttu ráðstefnuna Að marka spor sem haldin var 1. desember sl. í húsnæði Háskóla Íslands við Stakkahlíð.
Lesa meira
4. des. 2008
Útbúnar hafa verið reglur með tilmælum um viðbrögð foreldra og forráðamanna vegna röskunar á skólastarfi vegna óveðurs.
Lesa meira
2. des. 2008
Samstarfshópur á vegum Menntavísindasviðs HÍ, Kennarasambands Íslands og Landlæknisembættisins boðar til fræðslu- og umræðufundar 3. desember nk., milli 16:00 og 18:00. Á fundinum verður fjallað um samfélagsaðstæður, ástæður þeirra og hlutverk skólanna.
Lesa meira
1. des. 2008
Hægt er að leita aðstoðar vegna áhættumats, forvarna og heilsueflingar á vinnustað hjá viðurkenndum þjónustuaðilum í vinnuvernd.
Lesa meira
1. des. 2008
Könnunin var send út til 262 leikskóla á netinu þann 16. september 2008 og bárust 222 svör fram til 9. október (svarhlutfall 84,7%).
Lesa meira
26. nóv. 2008
Skrifstofu KÍ hafa borist fyrirspurnir frá félagsmönnum um stöðu sjóða KÍ og aðildarfélaga þess í kjölfar yfirtöku ríkisins á stóru bönkunum þremur. KÍ er með mest af sínum viðskiptum hjá BYR og að stórum hluta á venjulegum innlánsreikningum með góðri ávöxtun.
Lesa meira
26. nóv. 2008
Yfirlýsing frá ASÍ, BSRB, BHM og KÍ.
Lesa meira
26. nóv. 2008
Þann 1. desember standa Félag leikskólakennara og RannUng fyrir ráðstefnu um rannsóknir í menntunarfræðum ungra barna.
Lesa meira
25. nóv. 2008
Þrátt fyrir aðhaldsaðgerðir í rekstri Sjúkrasjóðs á árinu eru úthlutanir úr sjóðnum ennþá umfram tekjur og er því óhjákvæmilegt að þrengja reglur sjóðsins enn meira en gert var í upphafi árs. Frá og með 1. janúar 2009 verða styrkir vegna tannlæknakostnaðar felldir niður.
Lesa meira
25. nóv. 2008
Ríkisstjórnin samþykkti á fundi þann 21.11.2008 að lagt verði fyrir Alþingi frumvarp Jóhönnu Sigurðardóttur, félags- og tryggingamálaráðherra, um að aðlögunarheimildir aðildarsamnings EES frá 2007 um aðgengi ríkisborgara Búlgaríu og Rúmeníu að íslenskum vinnumarkaði verði áfram nýttar fram til 1. janúar 2012. Frumvarpið er lagt fram í ljósi þeirrar óvissu sem ríkir um stöðu og þróun á innlendum vinnumarkaði á næstu mánuðum vegna þrenginga í efnahagslífi þjóðarinnar.
Lesa meira
20. nóv. 2008
Viðskiptaráð hefur set fram sjö lykilatriði sem það telur skipta sérlega miklu máli fyrir framtíð íslensks efnahagslífs. Nú sem aldrei fyrr þarf að setja menntun í forgang að mati ráðsins.
Lesa meira
20. nóv. 2008
Hægt er að skoða annaruppbót/persónuuppbót á síðu ki.is.
Lesa meira
17. nóv. 2008
Á fundinum verður fjallað um stöðu miðaldra og eldra fólks þegar þrengir að á vinnumarkaði.
Lesa meira
14. nóv. 2008
Námskeiðið er fyrir kennara og annað starfsfólk grunnskóla og er haldið í Gerðubergi, A sal á 2. hæð.
Lesa meira
13. nóv. 2008
Fjallað verður um UT og skólastarf frá ýmsum sjónarhornum með það að markmiði að þátttakendur fái skýrari sýn á og gagn tæknistuðnings í námi og kennslu og stefnu á stjórnenda skólastofnana um þróun í tæknistuddu námi í framtíðinni.
Lesa meira
13. nóv. 2008
Íslenskt samfélag stendur á tímamótum vegna grundavallarbreytinga í efnhagskerfi þjóðarinnar. Aðilar Reykjavíkurborgar sem sérstaklega vinna með börnum og unglingum hafa tekið höndum saman undir yfirskriftinni Börnin í borginni.
Lesa meira
13. nóv. 2008
Heilsustefnan nær til ársloka 2011 og er markmið hennar að skapa samfélagslegar forsendur sem stuðla að bættri heilsu allra landsmanna. Í heilsustefnunni er lögð sérstök áhersla á nokkra áhrifaþætti heilbrigðis, þ.e. hreyfingu, næringu og geðrækt, með það fyrir augum að koma í veg fyrir sjúkdóma og þá þjóðfélagslegu byrði sem þeim fylgja.
Lesa meira
13. nóv. 2008
Vinnueftirlitið heldur áhugaverð námskeið í nóvember og desember (sjá www.vinnueftirlit.is) og vill KÍ sérstaklega benda skólum á tvö námskeið, Vellíðan í vinnunni (18. nóvember) og Áhættumat fyrir alla (26. nóvember).
Lesa meira
13. nóv. 2008
Umfjöllunarefni ráðstefnunnar er Foreldrahlutverkið og foreldrafærni.
Lesa meira
11. nóv. 2008
Félag framhaldsskólakennara hélt aukafulltrúafund á Grand hóteli í Reykjavík sl. föstudag. Á fundinum voru samþykktar tvær ályktanir, annars vegar um brýnar aðgerðir í menntamálum vegna samfélagsþrenginga og hins vegar um stöðu framhaldsskólans í tengslum við útfærslu og framkvæmd nýrra menntalaga.
Lesa meira
11. nóv. 2008
Vegna ítrekaðra fyrirspurna um námsleyfi vilja fulltrúar endurmenntunarsjóða benda á að öllum umsóknum verður svarað fyrir jól.
Lesa meira
10. nóv. 2008
Vegna þeirra þrenginga sem nú steðja að þjóðinni býður Vinnueftirlitið fyrirtækjum upp á fyrirlestra um vinnuvernd með sérstakri áherslu á sálfélagslegt vinnuumhverfi. Þessi fyrirlestur er að vissu marki sniðinn að þörfum hvers vinnustaðar fyrir sig og getur verði allt frá hálfri klukkustund til tveggja tíma langur, allt eftir óskum og þörfum vinnustaðarins.
Lesa meira
7. nóv. 2008
Samkvæmt könnun á www.ki.is vilja 87% svarenda fá sendar stuttar fréttir sendar mánaðarlega í tölvupósti frá Kennarasambandinu. Þar af vilja 56% fá fréttirnar sem slóð á fréttabréf en 31% vilja frekar fá fréttirnar inni í tölvupóstinum. Loks vilja 13% ekki fá sendar fréttir. Fjöldi svara var fimm hundruð.
Lesa meira
6. nóv. 2008
Stjórn, samninganefnd og skólamálanefnd Félags framhaldsskólakennara boða til fundar með fulltrúum frá öllum félagsdeildum framhaldsskóla föstudaginn 7. nóvember nk. í Hvammi á Grand Hótel Reykjavík kl. 9:00 – 16:00.
Lesa meira
5. nóv. 2008
Áttu barn eða ungling sem finnst gaman að ferðast um á netinu? Ef svo er þá átt þú og barnið þitt stefnumót við SAFT og Símann á Háskólatorgi, laugardaginn 8. nóvember frá kl. 10.30-14.00. Þar munum við taka á þessum málum á skemmtilegan og fræðandi hátt.
Lesa meira
5. nóv. 2008
Nú fer hver að verða síðastur að skrá sig á ársþing Samtaka um skólaþróun sem hefst síðdegis á föstudaginn og er stoppfullt af spennandi umræðum og erindum auk hátíðarkvöldverðar og fleiri viðburða.
Lesa meira5. nóv. 2008
Fimmtudaginn 6. nóvember nk. verður haldin lokaráðstefna tilraunaverkefnisins GEMS – Guidance for Educators, Mentors and Students á Hilton Reykjavik Nordica Hotel, Suðurlandsbraut 2.
Lesa meira4. nóv. 2008
Þetta er yfirskrift morgunverðarfundar Félags forstöðumanna ríkisstofnana og Stofnunar stjórnsýslufræða og stjórnmála við HÍ sem haldinn verður þann 11. nóvember kl. 8.30-10.00 á Grand hótel í Reykjavík.
Lesa meira31. okt. 2008
Félag talkennara og talmeinafræðinga, Íslenska málfræðifélagið, Málvísindastofnun Háskóla Íslands og Heyrnar- og talmeinastöð Íslands gangast fyrir ráðstefnu um tal- og málmein laugardaginn 8. nóvember næstkomandi.
Lesa meira
29. okt. 2008
Umsóknarfrestur vegna þessara styrkja er nú tvisvar á ári og fjallað verður um umsóknir óháð tímasetningu námskeiða. Umsóknarfrestur rennur út 30. apríl og 31.október. Berist umsókn of seint, verður hún tekin fyrir við næstu úthlutun á eftir (þó er miðað við, að ekki sé lengra en 6-12 mánuðir frá því að námskeið var sótt eða haldið).
Lesa meira29. okt. 2008
Hlutverk þróunarsjóðs námsgagna er að stuðla að nýsköpun, þróun, gerð og útgáfu námsgagna fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla í því markmiði að tryggja framboð og fjölbreytileika námsgagna í samræmi við þarfir nemenda og skóla.
Lesa meira29. okt. 2008
Menntamálaráðuneyti auglýsir eftir umsóknum um styrki úr tónlistarsjóði samkvæmt lögum um tónlistarsjóð nr. 76/2004, til verkefna sem efnt verður til á tímabilinu janúar til ágúst 2009. Næst verður auglýst eftir umsóknum í maí 2009 vegna verkefna á síðari hluta árs 2009.
Lesa meira
23. okt. 2008
Þriðjudaginn 21. október sl. hélt Vinnueftirlitið ráðstefnu á Grand hótel Reykjavík undir yfirskriftinni „Bætt vinnuumhverfi-betra líf, áhættumat og forvarnir eru leiðin“. Þar voru sex fyrirmyndarfyrirtæki verðlaunuð fyrir gott áhættumat og forvarnir á vinnustöðum og af þessum sex voru tveir leikskólar, Leikskólarnir Eyrarskjól og Sólborg á Ísafirði.
Lesa meira
23. okt. 2008
Sköpun í skólastarfi, list og fegurð, sköpunarkraftur á 21. öld og margt fleira. Þetta er ekki ráðstefna sem maður lætur sig vanta á. Í dag og á morgun kl. 14-17 í Stakkahlíð, Reykjavík.
Lesa meira
23. okt. 2008
Í vikunni undirritaði Menntavísindasvið samstarfssamninga við 80 leik- og grunnskóla um menntun kennara. Heimaskólar Menntavísindasviðs eru þar með orðnir 156 en í fyrra var skrifað undir 76 samninga.
Lesa meira
20. okt. 2008
Hér meðfylgjandi er dagskrá rannsóknarmálþings Menntavísindasviðs HÍ (áður KHÍ). Málþingið er haldið í húsnæði KHÍ við Stakkahlíð dagana 23. og 24. október, kl. 14:00-17:00 báða dagana.
Lesa meira20. okt. 2008
Menntavísindasvið Háskóla Íslands og Siðfræðistofnun gangast fyrir ráðstefnu um lífsleikni í skólum laugardaginn 1. nóvember 2008 fyrir kennara á öllum skólastigum og annað áhugafólk. Ráðstefnan stendur frá 10:15 til 16 í húsakynnum Menntavísindasviðs í Stakkahlíð (áður Kennaraháskólinn). Aðgangur er ókeypis og skráningar er ekki þörf.
Lesa meira
18. okt. 2008
Samtökin Heimili og skóli eiga aðild að norræna sambandinu NOKO, Nordisk Komité for skole-hjem-samarbeid. Sambandið stóð fyrir ráðstefnu í Stokkhólmi nýverið þar sem haldin var fjöld áhugaverðra erinda. Þeirra á meðal var erindi Per Hellqvist, öryggisráðgjafa hjá Symantec, Verndaðu barnið þitt á netinu núna! en fyrirlesturinn þiggur heiti sitt frá samnefndri bók – Skydda ditt barn nu.
Lesa meira
16. okt. 2008
Í bakþönkum dr. Gunna í Fréttablaðinu í dag ávarpar hann þá sem hann kallar sökudólgana og segir meðal annars: „Á meðan þið takið ykkur saman í andlitinu og gerið það rétta í stöðunni skal ég segja ykkur hvaða fólki ég treysti best. Það er fólkið sem tekur á móti börnunum mínum á morgnana, leikskólakennurunum. Eru þeir með aðstoðarmenn og sérlífeyrisdíl? Nei.“
Lesa meira
16. okt. 2008
Næsta vika er vinnuverndarvika Evrópsku vinnuverndarstofnunarinnar árið 2008. Þema þessarar vikur er áhættumat undir slagorðunum „Bætt vinnuumhverfi – betra líf: Áhættumat og forvarnir eru leiðin“.
Lesa meira
14. okt. 2008
Ný stjórn Kennarafélags Suðurlands var kjörin á aðalfundi félagsins þann 25. september síðastliðinn. Í stjórn voru kjörnir: Sigurður Halldór Jesson formaður, Guðmundur Björgvin Gylfason varaformaður, Jórunn Helena Jónsdóttir gjaldkeri, Steinunn Alda Guðmundsdóttir ritari og Elín Einarsdóttir meðstjórnandi.
Lesa meira10. okt. 2008
Alþjóða geðheilbrigðisdagurinn er í dag, 10. október. Að þessu sinni er ungt fólk í öndvegi og megináhersla lögð á að vekja athygli á úrræðum til að tryggja geðheilsu í þessum aldurshópi. Margt bendir til þess að andlegt álag ungmenna sé vanmetið, ekki síst nú þegar mikil óvissa ríkir í samfélaginu og möguleikar ungs fólks til að hafa áhrif á ástandið eru hverfandi.
Lesa meira9. okt. 2008
Félag leikskólakennara hvetur rekstraraðila leikskóla til að tryggja að börn hafi fullan og óskertan aðgang að leikskólanámi þrátt fyrir tímabundna fjárhagslega erfiðleika. Leikskólastjórar eru hvattir til að vera á varðbergi og grípa inn í ef grunur er um að foreldrar neyðist til að segja upp leikskóladvöl sökum fjárskorts.
Lesa meira
9. okt. 2008
Einn þeirra stuðningsaðila sem stjórnendur, kennarar og aðrir starfsmenn skóla og frístundaheimila geta bent foreldrum og nemendum á er Hjálparsíminn. Hjálparsími Rauða krossins, 1717, er gjaldfrjáls sími sem er opinn allan sólarhringinn fyrir þá sem þurfa aðstoð vegna depurðar, kvíða, þunglyndis, eða sjálfsvígshugsana.
Lesa meira9. okt. 2008
Borgarstjóri hefur sent starfsmönnum sínum bréf þar sem rætt er um að standa vörð um velferð borgarbúa og starfsmenn hvattir til að tryggja borgarbúum áfram fyrsta flokks þjónustu.
Lesa meira9. okt. 2008
Menntamálaráðherra hefur sent skólastjórnendum í leik-, grunn- og framhaldsskólum bréf þar sem því er beint til þeirra að ræða við starfsfólk sit t og hvetja það til að hlúa að nemendum.
Lesa meira7. okt. 2008
Jóhanna Karlsdóttir, lektor í kennslufræðum við menntavísindasvið HÍ, kynnir rannsókn á heimanámi nemenda í grunnskólum miðvikudaginn 8. október, kl. 16:00-17:00, í Skriðu fyrirlestrarsal menntavísindasviðs HÍ við Stakkahlíð.
Lesa meira3. okt. 2008
Í núverandi efnahagsástandi er hætt við því að mörg börn og ungmenni verði kvíðin og áhyggjufull. Landlæknisembættið hefur nú þegar sent frá sér frétt vegna þessa.
Lesa meira
1. okt. 2008
... verður haldin í húsnæði félagsins að Nethyl 2e. Námskeið í saumum á faldbúningi hefst 1. nóvember.
Lesa meira1. okt. 2008
Þann 18. september síðastliðinn var haldin ráðstefna um heilsueflingu á vinnustöðum sem Vinnueftirlitið, Lýðheilsustöð og Háskólinn í Reykjavík stóðu að. Áætlað er að á milli 160 – 170 manns hafi sótt ráðstefnuna en þar voru flutt fjölmörg erindi þar sem sjónum var beint að ávinningi heilsueflingar á vinnustöðum í dag. Meðal annars var fjallað um heilsueflingu á íslenskum vinnustöðum og sagði Hanna Hjartardóttir, skólastjóri Snælandsskóla, frá þátttöku skólans í verkefninu „Heil og sæl í vinnunni“.
Lesa meira
1. okt. 2008
Þetta er tólfta málþingið um rannsóknir, nýbreytni og þróun sem haldið er að tilstuðlan Menntavísindasviðs HÍ (áður KHÍ) í samráði við Menntamálaráðuneyti, Kennarasamband Íslands, Mennta- og leikskólasvið Reykjavíkurborgar, Grunn, Heimili og skóla, Félag framhaldsskóla og Þroskaþjálfafélag Íslands.
Lesa meira1. okt. 2008
Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins stendur fyrir ráðstefnu um einhverfu í Kennaraháskóla Íslands föstudaginn 10. október.
Lesa meira29. sep. 2008
Frá og með 110. fundi verða fundargerðir stjórnar Kennarasambands Íslands birtar á heimasíðu sambandsins.
Lesa meira29. sep. 2008
Verkefna- og námsstyrkjasjóður Félags grunnskólakennara og Skólastjórafélags Íslands auglýsir eftir umsóknum félagsmanna í grunnskólum um námslaun vegna framhaldsnáms á skólaárinu 2009-2010. UMSÓKNIR ÞURFA AÐ BERAST FYRIR 1. OKTÓBER!
Lesa meira
29. sep. 2008
Í tilefni af aldarafmæli skólahalds í Borgarnesi haustið 2008 og 50 ára afmælis skólahalds að Varmalandi 2005 verður gefin út saga barna- og unglingafræðslu í Mýrasýslu, 1880-2007.
Lesa meira
24. sep. 2008
Í tilefni af evrópska tungumáladeginum 26. september efna Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum og STÍL, samtök tungumálakennara á Íslandi, til hátíðarhalda. Hátíðin verður sett kl. 14:30 og haldin í stofu 101 á Háskólatorgi.
Lesa meira22. sep. 2008
Þann 9. september sl. gaf Efnahags- og framfarastofnunin (OECD) út ritið Education at a glance 2008: OECD Indicators. Í ritinu er meðal annars fjallað um útgjöld til menntunar og stjórnvöld þeirra ríkja þar sem um útgjaldaaukningu er að ræða halda henni að sjálfsögðu á lofti. Minna er talað um ýmislegt annað sem fram kemur í ritinu og er ekki til að hrósa sér af svo sem laun kennara.
Lesa meira18. sep. 2008
Geta eldri starfsmenn verið lykillinn að velgengni fyrirtækja? Málþingið verður haldið í Ketilshúsi á Akureyri fimmtudaginn 25. september 2008, kl. 13:00-16:00.
Lesa meira18. sep. 2008
Skólastjórum og trúnaðarmönnum í leikskólum var nýlega sendur spurningalisti þar sem þeir eru beðnir um að svara í sameiningu spurningum er varða framkvæmdir bókana skv. kjarasamningi. Til að niðurstöður verði marktækar er mikilvægt að svörun verði sem best og eru allir hvattir til að svara spurningalistanum. Spurningalistar um TV einingar verða einnig sendir til sveitarfélaganna. Miðlun ehf sér um framkvæmd könnunarinnar.
Lesa meira17. sep. 2008
Föstudaginn 19. september halda FG og FL málþing um nám barna á mörkum leik- og grunnskóla. Málþingið verður haldið í húsnæði Kennaraháskólans, kl. 13:00 – 16:00. Svo fleiri geti notið málþingsins heldur en verða á staðnum verður það sent út í vefsjónvarpi.
Lesa meira15. sep. 2008
Félag grunnskólakennara og Félag leikskólakennara halda málþing um nám barna á mörkum leik- og grunnskóla í Kennaraháskóla Íslands föstudaginn 19. september, kl. 13:00 – 16:00. Aðalfyrirlesari verður dr. Gerður G. Óskarsdóttir, fyrirverandi fræðslustjóri.
Lesa meira
12. sep. 2008
Boardmaker forritið er myndrænn gagnagrunnur sem hægt er að nota til að búa til margvíslegar skipulags- og samskiptatöflur og verkefni. Á Power Point námskeiðinu verður farið yfir hvernig hægt er að nota forritið á nýja vegu sem verkfæri í þjálfun og kennslu barna og einstaklinga sem þurfa á sérstuðningi að halda.
Lesa meira
11. sep. 2008
Um er að ræða eins árs þverfaglegt, hagnýtt nám fyrir háskólamenntað starfsfólk menntakerfisins. ENN ERU NOKKUR PLÁSS LAUS!
Lesa meira
9. sep. 2008
Dagana 10. til 11. október 2008 verða námstefna og aðalfundur Skólastjórafélags Íslands haldin í Brekkuskóla á Akureyri.
Lesa meira9. sep. 2008
Á þinginu munu innlendir og erlendir sérfræðingar fjalla um stefnu í menntamálum og framkvæmd hennar. Í fjölbreyttum málstofum verður m.a. fjallað um menntun kennara, framhaldsskóla framtíðarinnar og tengsl milli skólastiga.
Lesa meira4. sep. 2008
Samkvæmt vísitölu launa voru regluleg laun að meðaltali 2,6% hærri á öðrum ársfjórðungi 2008 en á fyrsta fjórðungi ársins á undan. Á sama tímabili hækkuðu laun á almennum vinnumarkaði um 3,1% að meðaltali en laun opinberra starfsmanna aðeins um 1,6%.
Lesa meira4. sep. 2008
Ráðstefnan er haldin 18. september í húsakynnum Háskólans í Reykjavík, Ofanleiti 2 í tengslum við Evrópuverkefnin „Heil og sæl í vinnunni“ og Healthy Together. Vinnueftirlitið, Lýðheilsustöð og Háskólinn í Reykjavík standa að henni. Ráðstefnan mun fara fram á ensku fyrir hádegi en íslensku eftir hádegi.
Lesa meira4. sep. 2008
Áströlsku gestirnir Dr. Robyn Ewing og Dr. David Smith flytja erindið Effective university - school partnerships and the role of the academic partner í Skriðu, fyrirlestrarsal í húsnæði menntavísindasviðs við Stakkahlíð, 16. september nk. kl. 15.00-16.00.
Lesa meira4. sep. 2008
Þann 26.–27. september n.k. verður haldin ráðstefna á Akureyri á vegum allra skólastiga. Tilgangur ráðstefnunnar er að stuðla að samræðu kennara og stjórnenda af öllum skólastigum um nýja lagasetningu og tækifæri henni tengdri.
Lesa meira29. ágú. 2008
Konur eru nú fleiri en karlar meðal starfsmanna í framhaldsskólum, hvort heldur eru taldir allir starfsmenn eða einungis starfsmenn við kennslu. Skólaárið 2007-2008 voru konur 57,7% allra starfsmanna í framhaldsskólum og 52,0% starfsmanna við kennslu.
Lesa meira22. ágú. 2008
Skrifstofur Kennarasambands Íslands eru lokaðar milli 12 og 14 í dag, föstudaginn 22. ágúst, vegna landsleiks í handbolta á ólympíuleikum.
Lesa meira
21. ágú. 2008
Glöggir lesendur ki.is síðunnar hafa efalaust tekið eftir Íslandskortinu vinstra megin neðarlega á síðunni.
Lesa meira21. ágú. 2008
Málstofa um fjarkennslu/fjarnám og framtíð.
Lesa meira
21. ágú. 2008
Það er leikur að læra - Opið hús og skemmtidagskrá í Miðbæjarskólanum á Menningarnótt.
Lesa meira
20. ágú. 2008
Verðbólga er nú meiri hér á landi en hún hefur verið um langt árabil. Þrátt fyrir að samið hafi verið um nokkrar launahækkanir í kjarasamningum kennara í grunn- og framhaldsskólum í vor er ljóst að launin gera ekki betur en að halda í við verðbólguna á samningstímanum.
Lesa meira20. ágú. 2008
Alþjóðaskrifstofa háskólastigsins auglýsir eftir þátttakendum á tengslaráðstefnu í Gdansk í Póllandi dagana 1. – 4. október 2008. Ráðstefnan, sem ber yfirskriftina Byggjum brýr – samstarf milli Íslands, Noregs og Póllands, hefur það markmið að fólk sem starfar innan menntageirans í löndunum þremur leiði saman hesta sína og þrói með sér hugmyndir að verkefnum sem gætu hlotið styrk úr Þróunarsjóði EFTA.
Lesa meira20. ágú. 2008
Dagana 16.-19. september og 21.-24. október verður haldið samnorrænt tilraunanámskeið, annars vegar í Finnlandi og hins vegnar í Danmörku.
Lesa meira20. ágú. 2008
ADHD samtökin eru til stuðnings börnum og fullorðnum með athyglisbrest, ofvirkni og skyldar raskanir, sem og fjölskyldum þeirra. Í tilefni af 20 ára afmæli samtakanna á Íslandi verður haldin ráðstefna um ADHD 25. og 26. september 2008 í samstarfi við fjölda aðila.
Lesa meira15. ágú. 2008
Fyrirhugað er að hefja kennslu í fjölskyldumeðferð/ráðgjöf í haust og er námið ætlað fólki með starfsmenntun á háskólastigi á mennta-, félags- og heilbrigðissviði. Kennarar frá "The Kempler Institute of Scandinavia" munu annast kennslu.
Lesa meira
15. ágú. 2008
Farzad Kamangar, 33 ára íranskur kennari, hefur verið dæmdur dauða, ásakaður um hryðjuverk. Hann er sagður tengjast PKK, verkamannaflokki Kúrdistan. Lögfræðingur Farzads fékk ekki að verja hann þegar dómurinn var staðfestur fyrir hæstarétti, sjálfur fékk Farzad ekki að taka til máls meðan á réttarhöldum stóð og dómari tók sér fimm mínútur til að fella dóminn. Alþjóðasamband kennara, Education International, hefur barist fyrir því að fá dóminum hnekkt og að Farzad, ásamt öðrum meðlimum stéttarfélaga sem sitja í fangelsi fyrir aðgerðastefnu sína, séu tryggð sanngjörn réttarhöld.
Lesa meira15. ágú. 2008
Ráðstefna 1. desember í húsnæði Menntavísindasviðs í Stakkahlíð.
Lesa meira12. ágú. 2008
Ítarleg og áhugaverð frétt um nýju kennaramenntunarlögin var birt á forsíðu Folkeskolen í gær. Blaðamaðurinn Louise Knuth Pedersen ræðir þar meðal annars við Ingibjörgu Kristleifsdóttur varaformann FL og Jóhannes Þór Skúlason stjórnarmann í FG um þýðingu þess að færa menntun á leik-, grunn- og framhaldsskólakennara á meistarastig.
Lesa meira12. ágú. 2008
Málþing um kennaramenntun á tímamótum var haldið í Kennaraháskóla Íslands þann 29. maí sl. Á málþinginu var rætt um þróun kennarastarfsins í ljósi samfélagsbreytinga og menntun kennara til framtíðar. Meginmarkmiðið var að fá fram sjónarmið hagsmunaaðila leik-, grunn- og framhaldsskóla um áherslur í kennaranámi út frá þörfum hvers skólastigs. Málþingsgestir unnu í sex starfshópum þar sem fjallað var um kennaramenntun út frá jafnmörgum sjónarhornum.
Lesa meira
8. ágú. 2008
Gunnlaugur B. Ólafsson segir á bloggsíðu sinni, gbo.blog.is, frá skemmtilegum gönguferðum með kennurum um Stafafell í Lóni, en Gunnlaugur hefur séð um að skipuleggja þessar ferðir sem farnar eru í samvinnu við Kennarasambandið.
Lesa meira5. ágú. 2008
Skrifstofa KÍ opnaði á ný í morgun klukkan átta að aflokinni þriggja vikna sumarlokun. Þjónustutími KÍ er frá kl. 8-16 alla virka daga.
Lesa meira
14. júl. 2008
Við opnum aftur eftir verslunarmannahelgi, þriðjudaginn 5. ágúst. Þeir sem þurfa að ná sambandi við Orlofssjóð meðan á sumarlokun stendur geta hringt í síma 899 5931 eftir hádegi eða sent tölvupóst á orlof hjá ki.is.
Lesa meira10. júl. 2008
Samningurinn var samþykktur með rösklega 74 % atkvæða. 22,4 % greiddu atkvæði á móti samningnum.
Lesa meira
1. júl. 2008
Hægt er að koma atkvæðum til Kjörstjórnar KÍ, Kennarahúsinu, Laufásvegi 81, 101 Reykjavík, allt fram til 10. júlí.
Lesa meira
1. júl. 2008
Einstaklingsmiðað nám er góð hugmynd en slælega framkvæmd. Ekki er borin næg virðing fyrir kennurum hérlendis og það háir skólastarfi. Sums staðar ráða nemendur of miklu um heimanám sitt. Þetta kom meðal annars fram í Kastljóssviðtali í gær við dr. Lasse Savola sem kennir kennslufræði stærðfræði við Háskólann í Reykjavík.
Lesa meira
1. júl. 2008
Ný lög um menntun og ráðningu kennara og skólastjórnenda við leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla öðlast gildi í dag, 1. júlí 2008. Lögin fela í sér lengingu kennaramenntunar í fimm ár og lögverndun starfsheitis leikskólakennara. Af þessu tilefni birtir Félag leikskólakennara heilsíðuauglýsingu í Fréttablaðinu þar sem leikskólakennurum er óskað til hamingju með daginn.
Lesa meira
1. júl. 2008
Kennaraháskóli Íslands og Háskóli Íslands sameinast formlega í dag undir heiti Háskóla Íslands. Um leið tekur gildi nýtt skipulag þar sem HÍ er skipt í fimm fræðasvið: Menntavísindasvið, félagsvísindasvið, heilbrigðisvísindasvið, hugvísindasvið og verkfræði- og náttúruvísindasvið.
Lesa meira30. jún. 2008
Nýir skólastjórar hafa verið ráðnir við leikskólana Klambra, Ösp, Heiðarborg og Holtaborg.
Lesa meira
30. jún. 2008
Þann 26. júní sl. var opnað nýtt orlofshús í Heiðarbyggð við Flúðir. Húsið er 99m² og er teiknað af Albínu Thordarson arkitekt. Í húsinu eru fjögur svefnherbergi, tvö með hjónarúmi auk barnarúms og tvö herbergi með fjórum kojum. Stofa er vel búin húsmunum með heimabíói og flatskjá með RÚV, Stöð 2 og SÝN. Húsin í Heiðarbyggð eru með þráðlausu netsambandi.
Lesa meira
26. jún. 2008
Guðmundur Guðlaugsson er formaður Félags stjórnenda í framhaldsskólum og áfangastjóri í Borgarholtsskóla. Hann kom við í Kennarahúsinu í morgun til að sinna ýmsum erindum og við fengum að smella af honum mynd á mótorfáknum sínum, Kawasaki Vulcan, sem hann keypti í gegnum eBay.
Lesa meira
26. jún. 2008
Kennarar sitja ekki auðum höndum yfir sumartímann og Lilja Magnúsdóttir íslenskukennari við Menntaskólann í Kópavogi gerði sér lítið fyrir og hreppti Gaddakylfuna í gær fyrir glæpasögu sína „Svikarinn“. Gaddakylfuna hlýtur sigurvegarinn í árlegri glæpasögusamkeppni Mannlífs og Hins íslenska glæpafélags. Í öðru sæti voru Valur Grettisson og Hanna Ruth Ólafsdóttir með söguna „Dýragarðurinn“ og í því þriðja Hilmar Örn Óskarsson og saga hans „Eldur“. Í nýjasta tölublaði Mannlífs er viðtal við Lilju og gefin hefur verið út bók með verðlaunasögunum og ellefu öðrum sögum sem þóttu bera af í keppninni. Í dómnefnd sátu Eiríkur Brynjólfsson kennari og foringi Hins íslenska glæpafélags, Helga Vala Helgadóttir og Ragnheiður Gyða Jónsdóttir.
Lesa meira
25. jún. 2008
Á vefnum edweek.org er spjallað reglulega um kennslu og skólamál. Í dag verður rætt um það hvort börn og ungt fólk þurfi meiri stuðning en áður fyrr til þess að marka sér stefnu í lífinu. Vafra ungmenni á milli skóla og vinnustaða svipað og þau væru á Netinu, stefnulaust og með hálfum hug? Fer vonleysi og tilfinning fyrir tilgangsleysi vaxandi? Hvað geta kennarar gert?
Lesa meira
24. jún. 2008
Alþjóðleg ráðstefna í Reykjavík 11.-13. ágúst 2008.
Lesa meira
24. jún. 2008
Alþjóðasamtök kennara (EI), Alþjóðasamband starfsfólks í almannaþjónustu (PSI) og hjálparsamtökin Oxfam ákölluðu í gær leiðtoga heimsins um að fjármagna menntun og heilsugæslu fyrir alla. Fjármununum á að verja til að mennta, þjálfa og ráða til starfa tugi milljóna kennara og starfsfólks í heilsugæslu. Þennan fjölda vantar til að íbúar heimsins njóti þeirra grundvallarmannréttinda að hafa aðgang að menntun og heilsugæslu.
Lesa meira
24. jún. 2008
Á sama tíma og framhaldsskólakennarar funda um nýundirritaða kjarasamninga sækja nemendur um skólavist í framhaldskólum landsins. Innritun er nú lokið og að þessu sinni sóttu um 4.426 nemendur úr 10. bekk grunnskóla um skólavist á haustönn 2008.
Lesa meira
23. jún. 2008
Kynningarfundir um nýtt samkomulag KÍ/framhaldsskóla og SNR f.h. fjármálaráðherra um breytingar og framlengingu á kjarasamningi KÍ fyrir framhaldsskóla verða haldnir 24.,25. og 26. júní.
Lesa meira
18. jún. 2008
Að kvöldi 16. júní 2008 var undirritað samkomulag milli Kennarasambands Íslands og samninganefndar ríkisins f.h. fjármálaráðherra um breytingar og framlengingu á kjarasamningi aðila með fyrirvara um samþykki félagsmanna KÍ í ríkisreknum framhaldsskólum.
Lesa meira
14. jún. 2008
Skólinn sameinast HÍ 1. júlí næst komandi og til verður nýtt fjögurra deilda menntavísindasvið. Áfram kennt í húsnæði KHÍ við Stakkahlíð fyrstu árin.
Lesa meira
11. jún. 2008
Bréf frá menntamálaráðherra.
Lesa meira
10. jún. 2008
Í kvöldfréttum RÚV þann 9. júní 2008 var fjallað um launagreiðslur til fyrrverandi formanns og varaformanns Orlofssjóðs KÍ. Nauðsynlegt er að leiðrétta rangfærslur sem fram komu í fréttaflutningnum og hafa formaður og varaformaður KÍ tekið saman greinargerð af því tilefni.
Lesa meira9. jún. 2008
Félag framhaldsskólakennara hélt fund með formönnum félagsdeilda og trúnaðarmönnum í öllum framhaldsskólum landsins 2. júní s.l. Fundarefnið var alvarleg staða í samningamálum.
Lesa meira5. jún. 2008
Kennaraháskólinn heldur á þessu ári upp á 100 ára afmæli sitt. Málþingið og ráðstefnan sem hér kynnt eru þættir í röð viðburða í tilefni af afmælisárinu.
Lesa meira4. jún. 2008
Haldið verður upp á aldarafmæli Kennaraháskólans í Borgarleikhúsinu nk. laugardag. Hátíðin hefst klukkan tvö síðdegis. Allir félagsmenn KÍ eru boðnir velkomnir á hátíðina meðan húsrúm leyfir.
Lesa meira3. jún. 2008
Markmið sjóðsins er að styrkja rannsóknir á sviði sérkennslu, blöndunar fatlaðra og ófatlaðra barna og boðskipta. Umsóknir þurfa að berast stjórn sjóðsins fyrir 1. júlí.
Lesa meira3. jún. 2008
Formenn félagsdeilda FF og trúnaðarmenn í framhaldsskólum ályktuðu um stöðuna í samningaviðræðum á fundi sínum í gær. Formennirnir og trúnaðarmennirnir átöldu stjórnvöld harðlega og í ályktuninni sem samþykkt var á fundinum er lagt fast að ráðherrum menntamála og fjármála að taka höndum saman um að finna ásættanlega niðurstöðu um nýjan kjarasamning framhaldsskóla hið allra fyrsta.
Lesa meira30. maí 2008
Um fimmtíu frumvörp urðu að lögum í gær á síðasta fundi Alþingis fyrir sumarleyfi. Þeirra á meðal eru menntafrumvörpin en þar í hópi er kennaramenntunarfrumvarpið svokallaða þar sem fimm ára kennaramenntun er lögleidd og starfsheiti og starfsréttindi leikskólakennara og stjórnenda í leikskólum er lögvernduð.
Lesa meira
30. maí 2008
Hvatningarverðlaunin komu að þessu sinni í hlut 7 leikskóla og eins leikskólastjóra, en alls barst 41 tilnefning til verðlaunanna vegna 14 nýbreytni- og þróunarverkefna.
Lesa meira
29. maí 2008
Þann 29. maí næstkomandi kl. 13:00-17:00 verður haldið málþing í Kennaraháskóla Íslands um menntun kennara. Á málþinginu verður rætt um þróun kennarastarfsins í ljósi samfélagsbreytinga og menntun kennara til framtíðar.
Lesa meira
28. maí 2008
Þann 9. júní næstkomandi standa Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands, Námsflokkar Reykjavíkur og Kennaraháskóli Íslands fyrir námstefnu um brotthvarf úr skólakerfinu og leiðir til að mæta því.
Lesa meira27. maí 2008
Tímarit um menntarannsóknir er gefið út af Félagi um menntarannsóknir (FUM) og er vettvangur fyrir rannsóknaritgerðir og fræðilega umfjöllun um menntamál, en því er ætlað að höfða til fagfólks og fræðimanna af breiðu sviði, þ.á.m. af sviðum félagsvísinda, hagfræði og sagnfræði. Frestur til að senda inn greinar til birtingar er til 15. júlí 2008.
Lesa meira27. maí 2008
Þann 2. júní næstkomandi kl. 16.00 verður stofnuð rannsóknarstofa um skóla án aðgreiningar við Kennaraháskóla Íslands í Skriðu, fyrirlestrarsal skólans.
Lesa meira26. maí 2008
Gengið var frá samningi aðildarfélaga BSRB sem áttu lausa samninga við ríkið 1. maí sl. við samninganefnd ríkisins í gær, 25. maí. Samið var til skamms tíma eða til loka mars á næsta ári.
Lesa meira23. maí 2008
Eru sum börn of óþroskuð til að takast á við skólastarf á fyrstu árum skyldunáms? Hvað getum við gert? Fyrirlestur og umræður fyrir leik- og grunnskólakennara mánudaginn 26. maí í Mýrarhúsaskóla á Seltjarnarnesi kl. 17:00.
Lesa meira23. maí 2008
Opið bréf formanns og varaformanns Félags framhaldsskólakennara, Aðalheiðar Steingrímsdóttur og Magnúsar Ingólfssonar, til þingmanna um frumvarp til framhaldsskólalaga. Greinin birtist í Morgunblaðinu, 23. maí 2008.
Lesa meira22. maí 2008
... er heiti á grein formanns og varaformanns Félags framhaldsskólakennara, Aðalheiðar Steingrímsdóttur og Magnúsar Ingólfssonar, um frumvarp til framhaldsskólalaga. Greinin birtist í Fréttablaðinu 9. maí s.l.
Lesa meira22. maí 2008
Úrslit í allsherjaratkvæðagreiðslu um framlengingu og breytingar á kjarasamningi milli Kennarasambands Íslands (vegna Skólastjórafélags Íslands) og Launanefndar sveitarfélaga liggja nú fyrir.
Lesa meira21. maí 2008
Úrslit í allsherjaratkvæðagreiðslu um framlengingu og breytingar á kjarasamningi milli Kennarasambands Íslands (vegna Félags grunnskólakennara) og Launanefndar sveitarfélaga.
Lesa meira21. maí 2008
Tilefni sýningarinnar er að nú eru 100 ár liðin frá því að Kennaraskóli Íslands tók til starfa og sömuleiðis er öld liðin frá setningu fyrstu fræðslulaganna. Sýningin veitir innsýn í skólastarf, menntun og þróun kennarastéttarinnar og áhrif hennar á daglegt líf og samfélag. Sérstakur gaumur er gefinn að framlagi kennslukvenna og áhrifum þeirra á samfélagsmynd liðinnar aldar og þátt kvenna í heilsugæslu skólabarna.
Lesa meira19. maí 2008
Mikil óvissa um kjarasamninga í framhaldskólum.
Lesa meira
19. maí 2008
Föstudaginn 23. maí kl. 14:30 mun Ingrid Engdahl lektor við Stokkhólmsháskóla halda fyrirlestur um yngstu leikskólabörnin. Fyrirlesturinn fer fram á ensku.
Lesa meira19. maí 2008
Frummælendur á fundunum verða Björg Bjarnadóttir formaður FL og Ingibjörg Kristleifsdóttir varaformaður FL, aðrir fulltrúar í samninganefnd mæta einnig þar sem því verður við komið.
Lesa meira
19. maí 2008
Á næstu mánuðum verða léttlestrarbækurnar um Rut endurútgefnar en þær komu út á árunum 1992 til 1995 og hafa verið lengi uppseldar.
Lesa meira16. maí 2008
Látið í ykkur heyra, spjallið er hér neðst á síðunni.
Lesa meira15. maí 2008
Alþjóðasamband lesbía og homma, ILGA, hefur útnefnt 17. maí sem útgáfudag ársskýrslu samtakanna um ríkisstyrkta hómófóbíu, lesbófóbíu og transfóbíu í heiminum.
Lesa meira14. maí 2008
Lesa meira14. maí 2008
Föstudaginn 16. maí verður efnt til málþings um menntun til sjálfbærrar þróunar. Málþingið hefst klukkan 12:30
Lesa meira13. maí 2008
Þriðjudaginn 13. maí 2008 kl. 13.00-15.00 verður haldinn opinn umræðufundur um PISA 2006 í sal Námsmatsstofnunar, Borgartúni 7A.
Lesa meira7. maí 2008
Umsóknarfrestur er til 20. maí.
Lesa meira7. maí 2008
Kennaraháskólinn og menntastofnanir á Norðurlandi vestra standa fyrir mjög áhugaverðri námsstefnu um útinám þann 15. maí nk.
Lesa meira2. maí 2008
Dagana 7., 8. og 9. maí fara fram fyrstu og einu doktorsvarnir við Kennaraháskóla Íslands þar sem skólinn sameinast Háskóla Íslands 1. júlí næstkomandi.
Lesa meira1. maí 2008
1. maí ávarp fulltrúaráðs verkalýðsfélaganna í Reykjavík, BSRB, BHM, KÍ og SÍF
Lesa meira
30. apr. 2008
Stjórnendur í grunnskólum skrifuðu undir sinn fyrsta sjálfstæða samning klukkan þrjú síðdegis í dag. Samningurinn verður kynntur í deildum Skólastjórafélags Íslands (SÍ) í næstu viku og gengið verður til kosninga um hann fyrrihluta maímánaðar.
Lesa meira
29. apr. 2008
Kjarasamningur KÍ (vegna FG) og LN gildir frá 1. júní 2008 til 31. maí 2009. Gengið verður til kosninga um samninginn í fyrri hluta maímánaðar.
Lesa meira29. apr. 2008
Lesa meira28. apr. 2008
Atkvæðagreiðsla um kjarasamning grunnskólakennara fer fram í fyrri hluta maímánaðar og munu trúnaðarmenn KÍ annast framkvæmdina.
Lesa meira28. apr. 2008
Samninganefndir Félags grunnskólakennara og Launanefndar sveitarfélaga undirrituðu kjarasamning klukkan hálf tvö í húsakynnum ríkissáttasemjara í dag. Núverandi samningur rennur út 31. maí nk. og laun grunnskólakennara hækka um 25 þúsund krónur 1. júní.
Lesa meira28. apr. 2008
Félagsmenn í Kennarasambandinu eru hvattir til að fjölmenna í gönguna og í 1. maí kaffi KÍ á Kaffi Reykjavík kl. 15:00. Safnast saman á Hlemmi kl. 13:00. KÍ félagar hittast fyrir framan Kaupþing banka við Hlemm (gamli Búnaðarbankinn) og ganga saman undir fána KÍ. Útifundur á Ingólfstorgi stendur yfir frá kl. 14:10 -15:00.
Lesa meira22. apr. 2008
Orlofssjóður Kennarasambands Íslands hefur gert samning við Iceland Express um að selja afsláttarávísanir (gjafabréf) með verulegum afslætti í flug á þeirra vegum.
Lesa meira
21. apr. 2008
Ráðstefnan er haldin í þriðja sinn og er ætluð öllum sem vilja fræðast um málaflokkinn og leggja sitt af mörkum til að tryggja öryggi og velferð barna.
Lesa meira
18. apr. 2008
Vinnueftirlitið hefur gefið út í samvinnu við Umhverfisstofnun, Reykjavíkurborg og Kennarasamband Íslands bækling um raddheilsu kennara. Bæklingurinn er unninn af Valdísi J. Jónsdóttur heyrnar- og talmeinafræðingi.
Lesa meira18. apr. 2008
Danssmiðja Íslenska dansflokksins er að þessu sinni í samvinnu við Peter Anderson og ABC barnahjálp og sýna tvö ný dansverk undir heitinu „Í eina sæng“.
Lesa meira18. apr. 2008
Fimmtudaginn 24. apríl er boðið upp á stutt námskeið í Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra, þar sem sýnt verður hvernig nota má gagnvirkar töflur til stærðfræðikennslu. Einnig verða kynnt forrit til stærðfræðikennslu, einkum Autograph og Geometer's Sketchpad. Rauði þráðurinn á námskeiðinu verður gullna talan phi. Fyrirlesturinn er fyrir alla áhugamenn um stærðfræðikennslu. Sama dag er boðið upp á fyrirlestur og stutt námskeið í Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra undir heitinu: Nýjungar í kennslufræðum. Hvernig nýta má kennsluaðferð samvinnunáms (Cooperative Learning in Multicultural Groups) eða samvirkt nám í fjölbreyttum nemendahópi við íslenskukennslu. Flutt verður stutt kynning á kennsluaðferðinni og síðan fá þátttakendur að spreyta sig á henni.
Lesa meira
18. apr. 2008
Haldið verður upp á 15 ára afmæli skólahljómsveitar Grafarvogs með veglegum tónleikum í Rimaskóla sunnudaginn 20. apríl kl. 15:00. Einnig verður gefinn út geisladiskur í tilefni afmælisins.
Lesa meira18. apr. 2008
Þorvaldur Gylfason prófessor sagði í erindi sem hann hélt á þingi Kennarasambandsins að áhrif menntunar á hagsæld í þjóðfélaginu væru óvéfengjanleg. Þorvaldur ræddi og sýndi með glærum samanburð á launum og kaupmætti um víðan heim og varð eðlilega mjög tíðrætt um gildi menntunar en ekki síður um kosti og galla hinna mismunandi rekstrarforma skóla.
Lesa meira17. apr. 2008
Menntamálaráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, ávarpaði þing Kennarasambands Íslands og sagði í upphafi að kennarar beindu nú eðlilega sjónum sínum í auknu mæli að kennaralaunum og skólastarfi. Ráðherra sagði undanfarin ár hafa verið annasöm í ráðuneyti mennta, menningar og vísinda. Á öllum þessum sviðum hafi verið lögð áhersla á stefnumörkun og skipulagslegar endurbætur. Þessi vinna tengdist eðlilega breytingum sem orðið hafa á samfélaginu og munu verða á komandi árum. Á sviði menntamála hafi markvisst verið unnið að nýrri menntastefnu og endurskoðun skólakerfisins í takt við örar samfélagsbreytingar. Stefnt er að fjölþættari tækifærum til menntunar, samfellu í skólastarfi og auknum sveigjanleika í menntakerfinu.
Lesa meira17. apr. 2008
Skólaárið 2007-2008 var í fyrsta sinn í boði námskeið sem metið er til eininga á MA stigi. Námið er hugsað sem hvatning til kennara að auka menntun sína og afla sér hærri prófgráðu. Skólaárið 2008-2009 verður námskeiðið „Að vanda til námsmats“ í boði.
Lesa meira17. apr. 2008
Dagana 22. - 23. maí verður haldin ráðstefna í Kaupmannahöfn fyrir kennara/leiðbeinendur í sí- og endurmenntun, fræðslustjóra fyrirtækja, stjórnendur og verkefnastjóra fræðslumála og aðra áhugasama um menntun og fræðslumál. Viðfangsefni ráðstefnunnar er skipulag náms.
Lesa meira
17. apr. 2008
Þriðjudaginn 22. apríl 2008 verður haldinn fundur í BRÚ, umræðuvettvangi um skólamál, í salnum að Fríkirkjuvegi 1, á milli 16:00 og 18:00.
Lesa meira17. apr. 2008
Fyrirlestur Fannýjar Jónsdóttur verður miðvikudaginn 23. apríl kl. 16:00, en ekki á þriðjudaginn 15. apríl eins og auglýst hefur verið.
Lesa meira
16. apr. 2008
Umsóknarfrestur er til 25. apríl.
Lesa meira
16. apr. 2008
Umsóknarfrestur rennur út 2. maí.
Lesa meira15. apr. 2008
Japönsk stjórnvöld bjóða þrjá styrki til námsheimsókna til Japans til þess að kynnast menntakerfi, menningu og þjóðfélagsmálum. Styrkirnir eru ætlaðir framhaldsskólakennurum og kennurum í 8. - 10. bekk grunnskólans. Heimsóknin stendur í 14 daga og er gert ráð fyrir 214 þátttakendum frá 58 löndum. Lögð er áhersla á að allir, sem koma að heimsókninni, bæði gestir og heimamenn, séu vel mælandi á ensku. Námskeiðið, sem um ræðir, stendur frá 19. júní - 2. júlí næstkomandi. Umsóknarfrestur er til 20. apríl 2008.
Lesa meira15. apr. 2008
Lesa meira15. apr. 2008
Helgina 18-20. apríl n.k. mun Busli, félag ungbarnasundkennara, standa fyrir leiðbeinandanámskeiði í ungbarnasundi. Þetta er 20 stunda helgarnámskeið þar sem starfandi ungbarnasundkennarar, læknar og aðrir fróðir sjá um kennslu.
Lesa meira11. apr. 2008
Lesa meira
10. apr. 2008
Hér er hægt að nálgast setningarávarp Eiríks Jónssonar, formanns Kennarasambands Íslands, á 4. þingi KÍ sem sett var 9. apríl sl.
Lesa meira10. apr. 2008
Thulas Waltermade Nxesi, forseti Alþjóðasambands kennara, Education International (EI), er heiðursgestur á 4. þingi KÍ sem nú fer fram á Grand hóteli. Aðild að Alþjóðasambandi kennara eiga 394 kennarasamtök í 171 landi og eru félagsmenn þeirra alls um 30 milljónir og starfa þeir á öllum skólastigum frá leikskóla til háskóla. Ekki eru kennara í öllum löndum aðilar að Education International, m.a. ekki í stærsta ríki heims, Kína, þar sem talið er að séu um 10 milljón kennarar.
Lesa meira10. apr. 2008
Meðalgrunnlaun framhaldsskólakennara í október 2007 voru 295 þúsund krónur en 405 þúsund með yfirvinnu. Meðalgrunnlaun leikskólakennara voru 261 þúsund krónur á sama tíma en meðalheildarlaun þeirra 297 þúsund krónur. Meðaltal grunnlauna tónlistarskólakennara voru 291 þúsund krónur en meðalheildarlaun þeirra 331 þúsund krónur. Meðalgrunn- og heildarlaun grunnskólakennara voru lægst meðal aðildarfélaga KÍ, grunnlaunin voru 242 þúsund krónur en heildarlaunin 285 þúsund krónur. Þetta kemur m.a. fram í kjarakönnun, sem Capacent Gallup gerði fyrir Kennarasamband Íslands og kynnt var á kennaraþinginu.
Lesa meira10. apr. 2008
Þórður Skúlason, framkvæmdastjóri Sambands íslenskra sveitarfélaga flutti ávarp fyrir hönd Halldórs Halldórssonar formanns SÍS á 4. þingi Kennarasambands Íslands.
Lesa meira10. apr. 2008
Svanhildur Kaaber, fyrrverandi formaður og nú starfsmaður Kennaháskólans, sagði það nú vera sameiginlegt verkefni Kennaraháskóla Íslands og Kennarasambands Íslands að minnast þess að öld væri senn liðin síðan kennaramenntun hófst í landinu.
Lesa meira9. apr. 2008
4. þing Kennarasambands Íslands sett í dag.
Lesa meira
9. apr. 2008
Thulas Waltermade NXESI, forseti Alþjóðasambands kennara (Education International ) og framkvæmdastjóri Kennarasambands Suður- Afríku (SADTU), verður heiðursgestur á fjórða þingi Kennarasambands Íslands sem haldið verður á Grand hóteli Reykjavík dagana 9. - 11. apríl 2008. Hann mun ávarpa þingið við setningu þess. Aðild að Alþjóðasambandi kennara eiga 394 kennarasamtök í 171 landi og eru félagsmenn þeirra alls um 30 milljónir og starfa þeir á öllum skólastigum frá leikskóla til háskóla.
Lesa meira9. apr. 2008
Á 4. þingi KÍ verða starfandi sex málstofur fimmtudaginn 10. apríl kl. 10:45 – 12:15 þar sem ýmis mikilvæg málefni sem tengjast skólastarfi og málefnum kennara, skólastjórnenda og námsráðgjafa verða á dagskrá.
Lesa meira9. apr. 2008
Ath. að dagskrá þings er lítillega breytt.
Lesa meira
9. apr. 2008
Kennarahúsið lokar kl. 13:00 í dag, miðvikudaginn 9. apríl 2008 vegna þings Kennarasambandsins. Opnum aftur á morgun, fimmtudaginn 10. apríl kl. 13:00.
Lesa meira8. apr. 2008
Laugardaginn 12. apríl verður námskeið á vegum tónmenntakennarafélagsins. Það verður haldið í Seljaskóla frá klukkan 10-12 og 13-16 og er námskeiðsgjald 10.000,- krónur. Leiðbeinendur á námskeiðinu eru þær stöllur Þórdís Heiða og Hildur Guðný.
Lesa meira8. apr. 2008
Kennarar – ekki missa af síðasta þætti í útvarpsþáttaröðinni „Að rækta fólk“ sem fjallar um kennara og kennarastarfið fyrr og nú frá ýmsum hliðum. Þættirnir eru í umsjón Önnu Margrétar Sigurðardóttur og Leifs Haukssonar og sá sjötti og síðasti er á Rás 1 kl. 14:40 á laugardaginn kemur, 12. apríl.
Lesa meira
8. apr. 2008
Þann 9. maí nk. stendur Lýðheilsustöð fyrir ráðstefnunni SKÓLI OG LÝÐHEILSA. Ráðstefnan verður haldin á Hótel Nordica frá kl. 8:30-16:30.
Lesa meira7. apr. 2008
Þorsteinn Helgason dósent við Kennaraháskóla Íslands heldur fyrirlestur um kennslubækur miðvikudaginn 9. apríl, kl. 16-17 í Bratta í KHÍ. Hugmyndir um „kennslubókastýrða kennslu“ verða kannaðar og ýmsum spurningum velt upp.
Lesa meira3. apr. 2008
Ráðstefna um starfendarannsóknir verður haldin þann 4. apríl 2008 kl. 13:00-17:00 í Borgarholtsskóla - ENN ER HÆGT AÐ SKRÁ SIG!
Lesa meira
2. apr. 2008
Af því tilefni verður opið hús að Háaleitisbraut 13, á skrifstofu samtakanna 3. hæð og í fræðslusal á 4. hæð, milli kl. 15 og 18. Fyrirlestur Dr. Urðar Njarðvík sálfræðings um kvíða og líðan barna með ADHD er kl. 16:00.
Lesa meira
2. apr. 2008
Föstudaginn 4. apríl nk. munu Bókasafn Háskólans á Akureyri, kennaradeild HA og 3f, standa fyrir fræðslufundi um upplýsingatækni í skólastarfi.
Lesa meira28. mar. 2008
Við Grunnskóla Tálknafjarðar eru lausar til umsóknar kennarastöður frá og með næsta skólaári.
Lesa meira28. mar. 2008
Opinn umræðufundur um PISA 2006 verður haldinn þriðjudaginn 1. apríl 2008 kl. 13.00-15.00 í sal Námsmatsstofnunar, Borgartúni 7A.
Lesa meira28. mar. 2008
Umsóknarfrestur vegna þróunarstyrkja FG og SÍ hefur verið framlengdur til 4. apríl nk. Umsóknir sendist til Kennarasambands Íslands, Laufásvegi 81, 101 Reykjavík.
Lesa meira27. mar. 2008
Málefni ráðstefnunnar verða: áhættuhegðun, fjölskyldumál, skólamál og tómstundastarf, kynjafræði og margbreytileiki.
Lesa meira27. mar. 2008
Samtök áhugafólks um skólaþróun boða til ráðstefnu undir heitinu: Að rjúfa einangrun kennara. Ráðstefnan verður haldin í Borgarholtsskóla 4. apríl 2008 kl. 13:00.
Lesa meira
26. mar. 2008
Næsti fundur í fundaröð íslenskra háskóla og utanríkisráðuneytisins verður haldinn í Kennaraháskóla Íslands fimmtudaginn 27. mars. Þar verður fjallað um mikilvægi menntunar, hlutverk og ábyrgð Íslands og Íslendinga í samfélagi þjóðanna.
Lesa meira26. mar. 2008
Hér til hægri á síðunni er búið að setja upp skyndikönnun. Endilega taka þátt!
Lesa meira
25. mar. 2008
Á vegum verkefnisins „Heil og sæl í vinnunni“ eru væntanlegir ýmsir spennandi atburðir.
Lesa meira
25. mar. 2008
Við Grunnskóla Mýrdalshrepps eru lausar til umsóknar kennarastöður frá og með næsta skólaári.
Lesa meira25. mar. 2008
Viðræðunefndir SÍ og LN hafa ekki hist síðan miðvikudaginn 5. mars sl.
Lesa meira
25. mar. 2008
Námskeiðið „Einelti á vinnustað: Forvarnir og viðbrögð“ verður haldið fimmtudaginn 3. apríl nk. á milli 13:00 og 16:00. Námskeiðið er haldið í samstarfi við ParX viðskiptaráðgjöf og ætlað stjórnendum og öðrum sem sinna starfsmannamálum í fyrirtækjum og stofnunum.
Lesa meira
19. mar. 2008
Kennarahúsið lokar kl. 14:00 í dag, miðvikudaginn 19. mars 2008. Opnum aftur hress og kát eftir páska, þriðjudaginn 25. mars kl. 08:00.
Lesa meira19. mar. 2008
Stjórn Reykjavíkurdeildar Félags leikskólakennara mótmælir þeirri ákvörðun meirihluta borgarstjórnar að stofna 5 ára deildir í grunnskólum borgarinnar. Stjórnin telur að þetta sé fyrsta skrefið í þá átt að færa 5 ára börn inn í grunnskólana og er það miður. Rannsóknir sýna að leikurinn er eðlilegasta námsleið ungra barna og mikilvægt er að efla leikskólann sem fyrsta skólastigið.
Lesa meira14. mar. 2008
Á Grand Hóteli standa nú yfir aðalfundir þriggja stærstu aðildarfélaga Kennarasambandsins. Leikskólinn, grunnskólinn og framhaldsskólinn ræða af fullum krafti um kaup sín og kjör, um menntafrumvörpin sem bíða þess að verða að lögum og fjölmörg önnur mál, auk þess að kjósa nýtt fólk til trúnaðarstarfa. Athygli vekur að kennarafélögin þrjú skuli funda á sama stað og sama tíma en það er til marks um mikinn og vaxandi samhug kennara þvert á skólastig.
Lesa meira
12. mar. 2008
Aðalfundur FG verður haldinn á Grand Hóteli í Reykjavík 13. og 14. mars n.k. Fundurinn verður settur kl. 10:00 þann 13. mars.
Lesa meira
12. mar. 2008
4. aðalfundur Félags framhaldsskólakennara verður haldinn á Grand Hóteli Reykjavík dagana 13. og 14. mars 2008. Fundurinn verður settur kl. 13:00. Helstu viðfangsefni fundarins verða annars vegar slök launaþróun félagsmanna KÍ í framhaldsskólum og komandi kjarasamningar og hins vegar frumvörp sem nú eru til afgreiðslu á Alþingi um framhaldsskóla og kennaramenntun. Yfirskrift fundarins er „Nám nemenda og kjör kennara“.
Lesa meira
12. mar. 2008
Aðalfundur FL verður haldinn á Grand Hóteli í Reykjavík 13. og 14. mars n.k. Fundurinn verður settur kl. 12:30 þann 13. mars.
Lesa meira12. mar. 2008
Námsheimsóknir, sem starfræktar voru áður undir heitunum ARION og CEDEFOP hafa verið sameinaðar og eru nú hluti af Menntaáætlun ESB.
Lesa meira
12. mar. 2008
Konur í almannaþjónustu héldu kvennafund á alþjóðlegum baráttudegi kvenna 8. mars sl. undir yfirskriftinni „Skiptir máli að hafa konur í áhrifastöðum?“ Fjölmennt var á fundinum og flutt erindi þar sem rætt var um hvort við getum vænst breytinga á kjörum kvennastétta nú þegar konur eru komnar til áhrifa á pólitískum vettvangi og innan stéttarfélaga.
Lesa meira11. mar. 2008
Ráðstefna um eflingu foreldrahæfni 17. mars, á Grand Hótel Reykjavík.
Lesa meira7. mar. 2008
Konur í almannaþjónustu efna til kvennafundar laugardaginn 8. mars nk. kl. 17:00 á NASA við Austurvöll. Yfirskrift fundarins er „Skiptir máli að hafa konur í áhrifastöðum?“
Lesa meira7. mar. 2008
Kæru félagsmenn KÍ, nú er lag að leggja við hlustir!
Lesa meira
7. mar. 2008
Miðvikudaginn 12. mars næstkomandi verður haldinn kynningarfundur um Krikaskóla í Listasal Mosfellsbæjar. Fundurinn hefst kl. 20:00.
Lesa meira
6. mar. 2008
Þriðjudaginn 11. mars nk. mun Ása G. Ásgeirsdóttir, fagstjóri hjá Vinnueftirlitinu og stundakennari við Kennslu- og lýðheilsudeild Háskólans í Reykjavík, halda fyrirlestur um meginþætti er lúta að stjórnun heilsueflingar á vinnustöðum. Fyrirlesturinn verður haldinn í Háskólanum í Reykjavík, Ofanleiti 2, í stofu 101 og hefst kl. 11.45.
Lesa meira6. mar. 2008
Ráðstefna í Rúgbrauðsgerðinni, Borgartúni 6, í dag kl. 13 – 16.15
Lesa meira
4. mar. 2008
Lífshlaupið er samstarfsverkefni mennta- og heilbrigðismálaráðuneytis, Lýðheilsustöðvar, ÍSÍ og fleiri aðila. Verkefnið miðar að því að hvetja alla landsmenn til þess að huga að sinni daglegu hreyfingu og auka hana eins og kostur er, þ.e. í frítíma, heimilisverkum, vinnu, skóla og við val á ferðamáta. Á vefsíðu verkefnisins, www.lifshlaupid.is, er að finna frekari upplýsingar um verkefnið ásamt ýmsum gagnlegum fróðleik. Þar á meðal eru vefslóðir á áhugaverðar heilsufarsmælingar sem einstaklingar geta notfært sér til að skoða/meta andlegt og líkamlegt heilsufar sitt.
Lesa meira
3. mar. 2008
Fjórði aðalfundur Félags grunnskólakennara verður haldinn á Grand Hótel í Reykjavík, dagana 13. og 14. mars. Dagskrá hefst kl. 10:00.
Lesa meira
3. mar. 2008
Út er komið fyrsta fréttabréf verkefnisins „Heil og sæl í vinnunni.“
Lesa meira29. feb. 2008
Menntaráð Reykjavíkurborgar ætlar að efla tónlistarstarf í Fellaskóla með verkefni sem kallað hefur verið “músíkalskt par”. Það felst í samstarfi tónlistarskóla og grunnskóla, en sambærileg verkefni eru nú í gangi í 10 grunnskólum í samstarfi við 5 tónlistarskóla í borginni. Mikill áhugi er fyrir því að efla tónlistarstarf í Fellaskóla. Í fjölmenningarlegu samfélagi, líkt og í Fellahverfi, hefur sýnt sig að tónlistarkennsla hefur góð félagsleg áhrif og getur stuðlað að meiri samvinnu nemenda og skilningi þeirra í milli.
Lesa meira
29. feb. 2008
Barbara Ferster er leikskólakennari með meistarapróf frá Póllandi og hefur hún verið leikskólastjóri í leikskólanum Grænagarði á Flateyri frá árinu 2005.
Lesa meira28. feb. 2008
871 starfsmaður við kennslu í október 2006 var hættur eða hafði fengið leyfi frá störfum í október 2007. Brottfallið er 17,5%. Þetta er meira brottfall en mælst hefur í gagnasöfnun Hagstofu Íslands frá árinu 1997 eða í áratug. Í frétt frá Hagstofunni segir að brottfall úr kennslu sé hlutfallslega meira meðal þeirra sem ekki hafa kennsluréttindi og meðal þeirra sem eru í hlutastarfi.
Lesa meira
28. feb. 2008
Þorgerður Laufey Diðriksdóttir formaður Kennarafélags Reykjavíkur flutti erindi á samráðsfundi foreldra og borgaryfirvalda um manneklu í grunnskólum sem haldinn var 26. febrúar sl.
Lesa meira28. feb. 2008
Auglýst er eftir tilnefningum til hvatningarverðlauna Leikskólaráðs Reykjavíkur. Skilafrestur er til 1. apríl 2008.
Lesa meira
27. feb. 2008
Í Skólavörðunni er útdráttur úr fyrirlestri sem Pétur Gunnarsson rithöfundur hélt þann 30. janúar s.l. í tilefni af aldarafmæli kennaramenntunar.
Lesa meira27. feb. 2008
21. febrúar sl. komst Héraðsdómur Reykjavíkur að þeirri niðurstöðu að kennari sem starfað hefur um langt árabil við Landakotsskóla í Reykjavík eigi rétt til áframhaldandi aðildar að B-deild Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins þrátt fyrir að rekstrarfyrirkomulagi skólans hafi verið breytt frá og með 1. ágúst 2005 og skólinn sé nú rekinn sem einkahlutafélag eða sjálfseignarstofnun í eigu Kaþólsku kirkjunnar á Íslandi.
Lesa meira27. feb. 2008
Menntamálaráðherra hefur ákveðið að setja á fót starfshóp til þess að fjalla um áranguríslenskra nemenda í Pisa rannsókninni 2006. Starfhópnum er ætlað að vinna að gerð framkvæmdaáætlunar sem geti orðið farvegur fyrir markvissar umbætur í skólamálum á næstu árum. Ráðherra óskað í janúar sl. eftir viðbrögðum helstu hagsmunaaðila, þar með talið Kennarasambands Íslands, við niðurstöðum rannsóknarinnar. KÍ hefur nú sent ráðherra greinargerð sína um málið.
Lesa meira27. feb. 2008
Málþing um Olweusaráætlunina verður haldið í fundarsalnum Skriðu í Kennaraháskóla Íslands við Stakkahlíð í Reykjavík föstudaginn 29. febrúar kl. 9:00 til 16:30.
Lesa meira27. feb. 2008
Dagana 21.-24. maí 2008 verður haldin 10. norræna ráðstefnan um kennaramenntun. Markmið ráðstefnunnar að þessu sinni er að skoða tengsl kennaramenntunar og skólaþróunar.
Lesa meira27. feb. 2008
Fimmtudaginn 6. mars bjóða samtök launafólks og Jafnréttisstofa til ráðstefnu í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna. Ráðstefnan verður haldin í Rúgbrauðsgerðinni, Borgartúni 6, kl. 13-16:15.
Lesa meira27. feb. 2008
Lesa meira
25. feb. 2008
Miðvikudaginn 27. febrúar nk. kl. 16-18, verður haldinn fundur í BRÚ, umræðuvettvangi um skólamál. Margrét Birna Þórarinsdóttir kynnir PBS kerfið - stuðning við jákvæða hegðun og Guðlaug Erla Gunnarsdóttir kynnir hugmyndafræðina Uppeldi til ábyrgðar.
Lesa meira
25. feb. 2008
Mánudaginn 25. febrúar verður opið hús í Kennaraháskólanum við Stakkahlíð kl. 16-18.
Lesa meira20. feb. 2008
Launaþróun félagsmanna KÍ í framhaldsskólum hefur ekki fylgt launaþróun hefðbundinna viðmiðunarhópa hjá ríkinu á yfirstandandi samningstímabili og hafa framhaldsskólakennarar dregist umtalsvert aftur úr þeim í grunnlaunum.
Lesa meira19. feb. 2008
Námsmatsstofnun stendur fyrir opnum umræðufundi um PISA 2006 í dag, þriðjudag, á milli 13 og 15, í sal Námsmatsstofnunar Borgartúni 7a.
Lesa meira18. feb. 2008
„Við vörum við framkomnum hugmyndum Reykjavíkurborgar um að koma á fót fimm ára deildum við fjóra grunnskóla í Reykjavík næsta haust“ segir Björg Bjarnadóttir formaður Félags leikskólakennara.
Lesa meira18. feb. 2008
Samningar lausir hjá öllum félögum kennara á þessu ári.
Lesa meira
15. feb. 2008
Ólafur Proppé rektor Kennaraháskóla Íslands ritar grein í Morgunblaðið í dag um kennaranám til meistaragráðu. Þar fjallar Ólafur um meistaranám til kennarastarfsins og segir meðal annars að það sé alvarlegur misskilningur að halda því fram að kennurum yngstu barnanna nægi takmarkaðri, styttri eða minni menntun en hinum sem kenna þeim sem eldri eru. „Uppeldi og menntun, nám og kennsla eru afar flókin viðfangsefni sem krefjast vísindalegrar þekkingar og vinnubragða ekki síður en aðrar starfsgreinar þar sem krafist er meistaragráðu,“ segir rektor.
Lesa meira14. feb. 2008
Í dómi sem Hæstiréttur kvað upp 7. febrúar sl. er Grindavíkurbær dæmdur til að greiða leikskólastjóra við leikskóla í bænum tæplega 750 þúsund krónur ásamt dráttarvöxtum vegna vangoldins orlofs á fasta yfirvinnu á árunum 2000 til og með 2005.
Lesa meira
14. feb. 2008
Háskólinn á Akureyri og Kennaraháskóli Íslands halda utan um stórt rannsóknarverkefni á sviði menntunar til sjálfbærni um þessar mundir og óska eftir framhaldsskólum, grunnskólum og leikskólum til samstarfs. Háskólarnir benda á að frestur til að sækja um styrki úr þróunarsjóðum leik- og grunnskóla rennur út 3. mars nk.
Lesa meira14. feb. 2008
Kennurum krossbrá þegar frétt birtist á mbl.is síðdegis í gær um umsögn ASÍ um menntafrumvörpin. Þar rær sambandið á sömu mið og SÍS og borgarráð og gagnrýnir lengingu kennaramenntunar auk þess sem gagnrýnd er lögbinding kennaramenntunar hjá tveimur þriðju hlutum starfsmanna í leikskólum.
Lesa meira13. feb. 2008
Málþing haldið á vegum leikskóla Félagsstofnunar stúdenta 29. febrúar 2008 á Háskólatorgi.
Lesa meira13. feb. 2008
Viku- og tveggja vikna sumarbúðadvöl í Kanada býðst nú íslenskum vísindakennurum og nemendum þeirra á unglingsaldri.
Lesa meira13. feb. 2008
Aðalfundur FL verður haldinn á Grand Hóteli í Reykjavík 13. og 14. mars n.k. Fundurinn verður settur kl. 12:30 þann 13. mars.
Lesa meira12. feb. 2008
„Finnar gerðu meistarapróf frá háskóla að lágmarkskröfu fyrir grunnskólakennara strax árið 1979 - eða fyrir hartnær þrjátíu árum - og enginn fer í grafgötur um hversu vel finnskir skólar koma út úr alþjóðlegum könnunum“, segir Ólafur Proppé rektor Kennaraháskóla Íslands í bréfi til borgarráðs Reykjavíkur og Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Lesa meira11. feb. 2008
Ráðstefnan hefst með skráningu og afhendingu ráðstefnugagna kl. 8:45, laugardaginn 23. febrúar, en lýkur með léttum veitingum kl. 15:00.
Lesa meira6. feb. 2008
Vinningsnúmerið í happdrætti kjarakönnunar BSRB, BHM og KÍ er 110666.
Lesa meira
6. feb. 2008
Á næstu vikum eru í boði hjá Endurmenntun Háskóla Íslands ýmis námskeið sem henta vel fyrir grunn- og leikskólakennara sem og öðrum sem starfa með börnum og unglingum.
Lesa meira6. feb. 2008
Kennarar athugið! Málþinginu “Að vita meira og meira” sem halda átti 22. febrúar er frestað til vors vegna forfalla aðalfyrirlesara.
Lesa meira
5. feb. 2008
Kynningarnefnd Félags leikskólakennara hefur að undanförnu unnið að því í samvinnu við menntamálaráðuneyti, Samband íslenskra sveitarfélaga og samtökin Heimili og skóla að einn dagur á ári hverju verði sérstaklega tileinkaður leikskólanum og því starfi sem þar fer fram.
Lesa meira5. feb. 2008
Samræmd próf í íslensku og stærðfræði verða lögð fyrir nemendur í 4. og 7. bekk haustið 2008, sbr. 46. gr. laga nr. 66/1995 um grunnskóla.
Lesa meira5. feb. 2008
Síðdegismálþing Stofnunar stjórnsýslufræða og Félags forstöðumanna ríkisstofnana verður haldið þann 11. febrúar nk. kl. 15.05-17.00. Málþingið fjallar um nýjar leiðir í opinberri þjónustu; leiðir sem byggja á vali notenda og samkeppni milli þeirra sem veita þjónustuna.
Lesa meira
5. feb. 2008
SAFT heldur opið málþing í tilefni af Alþjóðlega netöryggisdeginum þann 12. febrúar nk. kl. 16-18 í Kennaraháskólanum.
Lesa meira4. feb. 2008
„Við verðum að hækka laun kennara“, sagði menntamálaráðherra á fundi sjálfstæðismanna sem sagt var frá í sjónvarpsfréttum í gær og formaður KÍ, Eiríkur Jónsson, fagnaði þessum orðum í sama fréttatíma. Þorgerður Katrín sagði kennaramenntunarfrumvarpinu ætlað að styrkja stöðu kennara og auka virðingu fyrir stéttinni, leikskólinn væri fyrsta skólastigið og því sjálfsagt að leikskólakennarar þyrftu einnig meistaragráðu. Sem kunnugt er hafa bæði borgarráð og Samband íslenskra sveitarfélaga gagnrýnt kennaramenntunarfrumvarpið, meðal annars á þeim forsendum að þá verði erfiðara að manna leik- og grunnskóla. Athygli vekur að umsagnir SÍS og borgarráðs skuli vera fullkomlega í blóra við afstöðu ráðherra, kennaramenntunarstofnana í landinu og síðast en ekki síst Kennarasambandsins en þess má geta að varaformaður KÍ rökstuddi lengingu kennaranáms á prenti löngu áður en umsagnir SÍS og borgarráðs voru lagðar fram.
Lesa meira
4. feb. 2008
Námskeiðið er ætlað öllu fagfólki í menntun og kennslu innan grunnskóla. Það verður haldið miðvikudaginn 13., föstudaginn 15. og mánudaginn 18. febrúar nk.
Lesa meira4. feb. 2008
Menntamálaráðuneytið býður leik- og grunnskólakennurum 15 e. viðbótarnám í íslensku, dönsku, ensku, stærðfræði og náttúrufræði. Skráningarfrestur er til 15. febrúar.
Lesa meira
4. feb. 2008
Markmiðið með degi leikskólans er m.a að gera þegna þjóðfélagsins betur meðvitaða um þýðingu leikskólakennslu fyrir börn og skapa jákvæða ímynd leikskólans. Með því móti beinist athygli þjóðarinnar að stöðu leikskólans, gildi hans fyrir þjóðarauð og alla menningu.
Lesa meira31. jan. 2008
Skólastigin þrjú skoðuð samhliða – leikskólinn fyrsta skólastigið.
Lesa meira30. jan. 2008
Hagsmunir nemenda í fyrirrúmi.
Lesa meira30. jan. 2008
Fjórða þing Kennarasambands Íslands verður haldið á Grand Hótel Reykjavík dagana 9. til 11. apríl næstkomandi. Þingið verður sett miðvikudaginn 9. apríl kl. 14.30.
Lesa meira30. jan. 2008
Þema dagsins hefur verið valið: Stærðfræðin og umferðin.
Lesa meira30. jan. 2008
Dregið úr miðstýringu og ábyrgð skólanna aukin.
Lesa meira30. jan. 2008
Skipar Íslendingum í hóp framsýnustu þjóða í menntunarmálum kennara
Lesa meira30. jan. 2008
Umsóknarfrestur vegna Leonardó styrkja er til 14. mars 2008.
Lesa meira
29. jan. 2008
Móðurmálskennsla - Málþing föstudaginn 1. febrúar í fyrirlestrasalnum Bratta í Kennaraháskóla Íslands frá 14:00-16:00.
Lesa meira
29. jan. 2008
Pétur Gunnarsson heldur forvitnilegan fyrirlestur í Skriðu.
Lesa meira29. jan. 2008
Morgunverðarfundur fjármálaráðuneytisins, Stofnunar stjórnsýslufræða og stjórnmála og Félags forstöðumanna ríkisstofnana verður haldinn á Grand hótel 6. febrúar 2008 nk. þar sem fjallað verður um annan hluta niðurstaðna könnunar meðal forstöðumanna ríkisstofnana 2007 og möguleg viðbrögð í ljósi þeirra.
Lesa meira25. jan. 2008
Námskeið um útiskóla haldið 9. til 13. júní 2008 í Bergen, Noregi.
Lesa meira25. jan. 2008
Félag grunnskólakennara og Félag leikskólakennara halda málþing um nám barna á mörkum leik- og grunnskóla í Kennaraháskóla Íslands föstudaginn 22. febrúar 2008 kl. 13:00-16:00.
Lesa meira25. jan. 2008
Stuðla ber að félagslegu öryggi starfsmanna.
Lesa meira25. jan. 2008
Menntaáætlun Nordplus: Opnunarráðstefna í Norræna Húsinu 1. febrúar 2008 kl. 12:30 - 17:00. Þátttaka skráist rafrænt á heimasíðu nordplus www.nordplus.is eða í síma 525 4311 fyrir 30. janúar.
Lesa meira23. jan. 2008
Þann 22. janúar 2008 lauk kosningu meðal félagsmanna í Félagi leikskólakennara til stjórnar FL kjörtímabilið 2008 til 2011.
Lesa meira
18. jan. 2008
Um notkun nýrra (ókeypis) verkfæra á Vefnum við fræðslustarf með fullorðnum – mannauðsþróun: How to use Web 2.0 tools in distance and blended teaching.
Lesa meira17. jan. 2008
Þetta kemur fram í niðurstöðum hnattrænnar könnunar sem Gallup vann fyrir Alþjóða efnahagsráðið en niðurstöður könnunarinnar voru lagðar fram í morgun á Davos fundinum í Sviss.
Lesa meira
17. jan. 2008
Föstudaginn 25. janúar nk. verður málþingið Enginn er eyland haldið í Kennaraháskóla Íslands við Stakkahlíð. Málþingið er haldið í tilefni af útkomu bókarinnar Fjölmenning á Íslandi sem Rannsóknastofa í fjölmenningarfræðum við Kennaraháskóla Íslands og Háskólaútgáfan gefa út. Málþingið fer fram í Skriðu, fyrirlestarasal í Hamri, nýbyggingu KHÍ frá kl. 13:00 -16:00.
Lesa meira15. jan. 2008
Umsóknir skulu berast menntamálaráðuneyti, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, í síðasta lagi 8. febrúar 2008.
Lesa meira
15. jan. 2008
Fyrirlesturinn verður í sal ÍSÍ að Engjavegi 6 (vestasta húsið), 2. hæð, 23. janúar, kl. 17:15.
Lesa meira
11. jan. 2008
Sjónarhóll – ráðgjafarmiðstöð stendur fyrir málþingi um systkini barna með sérþarfir, fimmtudaginn 7. febrúar nk., kl. 8.30 – 12.30 í Gullhömrum, Grafarholti.
Lesa meira11. jan. 2008
Í vefriti menntamálaráðuneytisins kemur fram að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra hefur lagt fyrir á Alþingi fjögur frumvörp til nýrrar menntastefnu, þar á meðal
nýja heildarlöggjöf um grunnskóla.
Lesa meira
10. jan. 2008
Um páskana 2008 eru í boði þrjár ferðir fyrir kennara en það eru tvær til Tallin í Eistlandi og ein til Riga í Lettlandi. Ferðirnar eru niðurgreiddar af Orlofssjóði KÍ en miðafjöldi er takmarkaður.
Lesa meira7. jan. 2008
Umsóknarfrestur til Comeníusarsamstarfsverkefna rennur út 15. febrúar 2008 og vegna styrkja til kennara og skólastjórnenda á leik-, grunn- og framhaldsskólastigi 31. janúar 2008.
Lesa meira7. jan. 2008
Vi er to lærerfamilier i Danmark - pensionister - der ønsker at bytte hus og bil i ca. 14 dage i perioden mellem den 15. juli og 15. august 2008.
Lesa meira
7. jan. 2008
Þetta er námskeið um leiklistarmeðferð eða dramaþerapíu og er það haldið af Vinnusmiðju FLÍSS - Félags um leiklist í skólastarfi og Fræðsludeildar Þjóðleikhússins.
Lesa meira7. jan. 2008
Kjörstjórn Félags leikskólakennara hefur ákveðið, að kosning vegna stjórnar FL fari fram með rafrænum hætti og hefjist fimmtudaginn 17. janúar kl. 9:00 og ljúki þriðjudaginn 22. janúar kl. 22:00.
Lesa meira