Þeir sem eru atvinnulausir geta skráð sig á atvinnuleysisskrá og átt rétt á atvinnuleysisbótum. Þeir fá jafnframt ráðgjöf og aðstoð við atvinnuleit og eiga kost á störfum sem eru á skrá hjá vinnumiðlunum Vinnumálastofnunar.
Réttinn til atvinnuleysisbóta ávinna einstaklingar sér á vinnumarkaði. Umsækjandi þarf því að hafa áunnið sér þau réttindi og uppfylla ákveðin skilyrði samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar til að eiga rétt á greiðslum. Þegar umsóknir berast Greiðslustofu frá þjónustuskrifstofunum er réttur umsækjanda til atvinnuleysistrygginga metinn og hver umsókn afgreidd samkvæmt lögum.
Greiðslur atvinnuleysisbóta fyrir allt landið fara fram hjá Greiðslustofu Vinnumálastofnunar. Þar er farið yfir umsóknir, meðfylgjandi gögn og bótaréttur metinn. Ef umsókn er samþykkt hefst greiðsla næstu mánaðarmót á eftir (þ.e. ef gögn hafa borist fyrir 19. dag mánaðar.) Umsækjendur um atvinnuleysistryggingar snúa sér til þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar á sínu svæði til að sækja um atvinnuleysisbætur. Þjónustuskrifstofur Vinnumálastofnunar um land allt annast skráningu atvinnulausra, veita atvinnulausum upplýsingar og ráðgjöf ásamt því að hafa eftirlit með að umsækjendur um atvinnuleysisbætur fullnægi skilyrðum laga um atvinnuleysistryggingar.
Nánari upplýsingar um atvinnuleysistryggingar og rétt til atvinnuleysisbóta er hægt að fá hjá þjónustuskrifstofum Vinnumálastofnunar um land allt. Óski umsækjandi eftir að ná beinu sambandi við afgreiðslufulltrúa hjá Greiðslustofu er hægt að hringja í síma 582 4900 og fá frekari upplýsingar.
Launamaður sem missir starf sitt að hluta telst hlutfallslega tryggður og nemur tryggingahlutfallið mismun réttar hans hefði hann misst starf sitt að öllu leyti og þess starfshlutfalls sem hann gegnir áfram. Ákvæði þetta á ekki við ef launamaður ákveður sjálfur að draga úr starfshlutfalli sínu.
Hægt er að óska eftir því að halda áfram að greiða til KÍ á atvinnuleysisbótum og mælir KÍ með að félagsmenn sínir geri það. Umsækjandinn þarf að merkja í þar tilgerðan reit á umsóknareyðublaði um atvinnuleysisbætur og þá sér Vinnumálastofnun um að koma greiðslunni til KÍ. Með því að óska eftir því heldur félagsmaður helstu réttindum sínum hjá stéttarfélaginu og aðgangi að þjónustu þess. Ef félagsmaður ákveður hins vegar að greiða ekki félagsgjöldin glatast ýmis réttindi. Þau helstu eru:
KÍ hvetur því félagsmenn sína til að halda tengslum við stéttarfélag sitt ef til atvinnuleysis kemur.
Eftirfarandi tölur gilda frá 1. janúar 2009: