Frétt

10. mar. 2010

Málþing 18. mars

Fimmtudaginn 18. mars nk. verður haldið málþing þar sem kynnt verður námsbrautin Menntastjórnun og matsfræði sem og kynnt nýleg meistaraprófsvefefni sem unnin hafa verið við brautina. Málþingið verður haldið kl. 15:00 til 18:00 í stofu E - 301 í húsnæði Menntavísindasviðs við Stakkahlíð.

Tilgangur málþingsins er tvíþættur:

  • að kynna námsbrautina Menntastjórnun og matsfræði og námsleiðir hennar:
    • Stjórnunarfræði menntastofnana.
    • Matsfræði.
    • Leiðtogar, nýsköpun og stjórnun.
  • að kynna nýleg meistaraprófsverkefni sem unnin hafa verið við brautina.

Dagskrá

Kl. 15:00     Erindi: Menntastjórnun og matsfræði, Börkur Hansen og Sigurlína Davíðsdóttir.

Kl. 15:30 - 16:30     Málstofur í stofum E-301 og E-302.

  • Sigurborg Matthíasdóttir. Sjálfsmat eflir fagmennsku: áhrif sjálfsmats á viðhorf kennara í framhaldsskólum.
  • Hjalti Jón Sveinsson. Er sérhver sinnar gæfu smiður? Hvers vegna hætta margir illa staddir nemendur námi í Verkmenntaskólanum á Akureyri meðan aðrir halda áfram?
  • Hanna Björg Vilhjálmsdóttir. „Ég fékk alltaf hvatingu.“ Ungar leiðtogaynjur í framhaldsskólum.
  • Ríkey Sigurbjörnsdóttir. Sjálfsmat skóla eykur gæði skólastarfs. Starfendarannsókn í Grunnskóla Siglufjarðar.
  • Valdimar Helgason. Sjálfsmat og nýting þess við skólaþróun. Viðhorf starfsmanna.
  • Ingileif Ástvaldsdóttir. Skólastjórnun og mótum skólamenningar í nýjum grunnskólum.

Kl. 16:30     Erindi: Leiðtogar, nýsköpun og stjórnun, Guðný Guðbjörnsdóttir.

Kl. 17:00 - 18:00     Málstofur E-301 og E-302.

  • Svanhildur María Ólafsdóttir. Ef teymiskennsla er svarið, hver er þá spurningin?
  • Friðborg Jónsdóttir. „Það er ekkert vígi öðruvísi, það heldur saman sínu afli til að standast árás.“ Eigindleg athugun á konum í stjórnunarstöðum.
  • Ólína Þorleifsdóttir. Kennslufræðileg forysta.
  • Kristín Eiríksdóttir. Hefur leikskólakennari það í hendi sinni hvernig leikskólastarfið gengur?
  • Árni Freyr Sigurlaugsson. Stundum er betra að hlusta en tala. Hvernig eru boðskipti á milli stjórnenda og kennara í grunnskóla?
  • Halldóra Pétursdóttir. Dulin kennsla á degi hverjum: mat á kennslu og kennsluaðferðum leikskólakennara í málrækt.

Kl. 18:00 - 19:00     Samverustund.

Vinsamlega tilkynnið þátttöku á netfangið olafurhe hjá hi.is.


Til baka



Aukaval


Fagfélög


Leturstærð og tungumál


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli