Frétt

11. ágú. 2011

Starfsmenn óskast

Orlofssjóður Kennarasambands Íslands óskar eftir að ráða tvo starfsmenn, í um 50% starf hvorn, til að sjá um þrif, þvotta, minniháttar viðhald og umsjón með orlofshúsum Kennarasambands Íslands við Sóleyjargötu 25 og 33 í Reykjavík.

Skriflegar umsóknir ásamt ferilskrá, mynd og meðmælum skal senda til Orlofssjóðs Kennarasambands Íslands, Kennarahúsinu Laufásvegi 81, 101 Reykjavík eða á netfang Orlofssjóðs KÍ orlof hjá ki.is. Umsóknarfrestur er til 15. ágúst nk. Æskilegt er að starfsmaður geti hafið störf sem fyrst.

Nánari upplýsingar veitir Hanna Dóra Þórisdóttir, framkvæmdastjóri Orlofssjóðs í síma 595-1111.

Orlofssjóður Kennarasambands Íslands


Til baka



Aukaval


Fagfélög


Leturstærð og tungumál


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli