Fæðingar- og foreldraorlof

Fyrirspurnir um fæðingarorlof má senda á launafulltrúa KÍ Ingibjörgu Úlfarsdóttur, ingibjorg hjá ki.is. 

Fæðingarorlof

Foreldrar eiga sjálfstæðan rétt til fæðingarorlofs í allt að þrjá mánuði hvort um sig vegna fæðingar, frumættleiðingar eða töku barns í varanlegt fóstur. Þessi réttur er ekki framseljanlegur. Auk þessa eiga foreldrar sameiginlegan rétt á þremur mánuðum til viðbótar sem annað foreldrið getur tekið í heild eða foreldrar skipt með sér. Foreldrar öðlast rétt til greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði eftir að hafa verið samfellt í 6 mánuði á innlendum vinnumarkaði fyrir fæðingardag barns eða þann tíma þegar barn kemur inn á heimili við ættleiðingu eða varanlegt fóstur.

Vegna barna sem fædd eru 1. janúar 2013 og síðar:

Útgreiðsluprósenta af meðaltali heildarlauna er 80%. Hámark greiðslna er kr. 350.000 á mánuði. Miða skal við tólf mánaða samfellt tímabil sem lýkur sex mánuðum fyrir fæðingardag barns eða þann dag sem barn kemur inn á heimili við frumættleiðingu eða töku í varanlegt fóstur.

Vegna barna sem fædd eru fyrir 1. janúar 2013:

Útgreiðsluprósenta af meðaltali heildarlauna umfram kr. 200.000 er 75% (var áður 80%). Meðaltal heildarlauna að kr. 200.000 er áfram með útgreiðsluprósentuna 80% en fjárhæð meðaltals heildarlauna sem umfram er með útgreiðsluprósentuna 75%. Hámark greiðslna er kr. 300.000 á mánuði (var kr. 350.000). Miða skal við tólf mánaða samfellt tímabil sem lýkur sex mánuðum fyrir fæðingardag barns eða þann dag sem barn kemur inn á heimili við frumættleiðingu eða töku í varanlegt fóstur.

Umsókn um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði

Til þess að fá greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði þurfa verðandi foreldrar að sækja um þær sérstaklega. Umsókn skal berast Fæðingarorlofssjóði a.m.k. 6 vikum fyrir áætlaðan fæðingardag barns. Foreldrar þurfa að fylla út sitthvort eyðublaðið.

Tilkynning um fæðingarorlof

Eigi síðar en 8 vikum fyrir áætlaðan fæðingardag barns verða tilvonandi foreldrar að tilkynna yfirmanni um skipulag fyrirhugaðs fæðingarorlofs. Tilkynningin þarf að vera á sérstökum eyðublöðum sem báðir foreldrar verða að skila inn til vinnuveitanda. Auk þess þarf að senda afrit af eyðublaðinu með umsókn til Fæðingarorlofssjóðs.

Tilkynning um fæðingarorlof: Hér er hægt að opna skjalið sem PDF skjal eða sem Word skjal.

Fæðingarstyrkur

Frá og með 1. janúar 2009 greiðir Sjúkrasjóður KÍ út fæðingarstyrki til félagsmanna í stað Fjölskyldu- og styrktarsjóðs áður. Upphæðin er kr. 200.000 (kr. 119.560 eftir skatt) miðað við fullt starf 12 mánuði fyrir fæðingu barns eða samkvæmt meðalstarfshlutfalli þann tíma. Skilyrði er að sjóðfélagi/félagsmaður fari með forsjá barnsins og taki að lágmarki 3ja mánaða fæðingarorlof. Hægt er að nýta styrkinn upp að 18 mánaða aldri barns. Vegna fjölburafæðinga er greidd sama upphæð (kr. 200.000)  fyrir hvert barn umfram eitt. Um ættleiðingar gilda sömu reglur. Séu báðir foreldrar félagsmenn geta báðir sótt um fæðingarstyrk.

Útfylla þarf sérstakt eyðublað sem nálgast má fyrir neðan. Umsókn skal fylgja ljósrit af fæðingarvottorði barns, staðfesting launagreiðanda um meðalstarfshlutfall síðustu 6 mánuði fyrir fæðingu barnsins og staðfesting skólastjóra á samningi um töku a.m.k. þriggja mánaða fæðingarorlofs. Fæðingarvottorð eru gefin út af Þjóðskrá. Allar umsóknir sem berast fyrir 15. hvers mánaðar eru afgreiddar í næsta mánuði á eftir. Umsóknir án umbeðinna fylgigagna verða endursendar án afgreiðslu.

Hægt er að sækja um fæðingarstyrk hér.

Annað:

Sé um að ræða fósturlát eftir 18 vikna meðgöngu eða andvana fæðingu eftir 22 vikna meðgöngu er greiddur út hálfur fæðingarstyrkur.

Fæðingarorlof telst starfstími

Vakin er athygli á því að sá tími sem starfsmaður er í fæðingarorlofi reiknast sem starfstími og vinnur hann sér inn rétt til orlofstöku og lengingar orlofs samkvæmt kjarasamningum eins og hann væri í starfi. Sama gildir um starfsaldurshækkanir, veikindarétt, uppsagnarfrest og rétt til atvinnuleysisbóta. Foreldri greiðir í lífeyrissjóð að lágmarki 4% meðan á fæðingarorlofi stendur en Fæðingarorlofssjóður greiðir að lágmarki lögbundið mótframlag. Rétt er að benda á að starfsmaður sem framlengir fæðingarorlof sitt telst taka launalaust leyfi í framhaldi af fæðingarorlofinu og orlof ávinnst ekki af launalausu leyfi.

Foreldraorlof

Auk fæðingarorlofs hefur hvort foreldri um sig rétt til að taka launalaust leyfi (foreldraorlof) í 4 mánuði til að vera samvistum við barn sitt. Sá réttur fellur niður við 8 ára aldur barnsins.

Fæðingarorlof og aðild að KÍ

Hægt er að óska eftir því að halda áfram að greiða til KÍ í fæðingarorlofi og mælir KÍ með að félagsmenn sínir geri það. Umsækjandinn þarf að merkja í þar til gerðan reit á umsóknareyðublaði um fæðingarorlof og þá sér Fæðingarorlofssjóður um að koma greiðslunni til KÍ. Með því að óska eftir því heldur félagsmaður helstu réttindum sínum hjá stéttarfélaginu og aðgangi að þjónustu þess. Ef félagsmaður ákveður hins vegar að greiða ekki félagsgjöldin glatast ýmis réttindi. Þau helstu eru:

  • Áskrift að Skólavörðunni og öðru efni sem Kennarasambandið gefur út falla niður þann tíma sem viðkomandi er ekki félagsmaður.
  • Réttur til úthlutunar orlofshúsa fellur niður þann tíma sem viðkomandi er ekki félagsmaður og punktasöfnun stöðvast sem síðan rýrir rétt til úthlutunar eftir að starf er hafið að nýju.
  • Réttur til úthlutunar úr Sjúkrasjóði Kennarasambandsins fellur niður meðan viðkomandi er ekki félagsmaður. Það tekur síðan 6 mánuði að ávinna sér réttinn eftir að viðkomandi hefur störf að nýju.
  • Réttur til úthlutunar úr Verkefna- og námsstyrkjasjóði, starfsmenntunar og vísindasjóðum fellur niður þann tíma sem viðkomandi er ekki félagsmaður. Það tekur aðila að Vísindasjóði leikskólakennara 3 mánuði að ávinna sér réttinn eftir að viðkomandi hefur störf að nýju og aðila að Vísindasjóði framhaldsskólakennara 6 mánuði að ávinna sér réttinn aftur.
  • Aðstoð stéttarfélagsins og lögfræðinga falla niður þann tíma sem viðkomandi er ekki félagsmaður.



Aukaval


Fagfélög


Leturstærð og tungumál


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli