Forsíða

Efst á baugi

3. sep. 2010

Viltu fá Skólavörðuna? Smelltu þá á hnappinn í vinstri dálki á ki.is

Nú er hægt að fá Skólavörðuna senda heim með því að skrá nafn og netfang hjá okkur á www.ki.is. Vinstra megin hér til hliðar á síðunni, undir Eplinu, er hnappur sem ber titilinn SKÓLAVARÐAN SEND HEIM Á PAPPÍR. Nokkur eintök verða jafnframt send í skóla (tvö til níu eftir fjölda félagsmanna) en viljir þú tryggja að þú fáir blaðið er þetta leiðin. Skólavarðan kemur eftirleiðis út fjórum sinnum á ári. Eplið, rafrænt fréttabréf kemur út að meðaltali tólf sinnum á ári.
Lesa meira

1. sep. 2010

Réttindakennurum fjölgar í framhaldsskólum

Í frétt frá Hagstofu Íslands kemur fram að 82,2% starfsmanna við kennslu í framhaldsskólum í nóvember 2009 höfðu kennsluréttindi og hafði fjölgað úr 78,0% árið áður. Í fréttinni segir að hlutfall réttindakennara hafi ekki verið svona hátt frá því að gagnasöfnun Hagstofunnar hófst fyrir áratug. Af þeim sem starfa við kennslu hafa hlutfallslega fleiri konur en karlar kennsluréttindi. Skólaárið 2009-2010 höfðu 86,9% kvenna kennsluréttindi en 77,1% karla. Rúmur fjórðungur framhaldsskólakennara (25,4%) er með meistaragráðu, doktorsgráðu eða sambærilega menntun og hefur fjölgað um 2,3 prósentustig frá fyrra skólaári.
Lesa meira

27. ágú. 2010

Námsorlof kennara og stjórnenda framhaldsskóla

Umsóknir um námsorlof á framhaldsskólastigi fyrir skólaárið 2011-2012 þurfa að berast menntamálaráðuneyti eigi síðar en 1. október 2010. Um námsorlof geta sótt framhaldsskólakennarar og stjórnendur framhaldsskóla. Einnig geta skólameistarar sótt um námsorlof fyrir hönd kennara viðkomandi skóla.
Lesa meira

18. ágú. 2010

Ráðagóðir kennarar og fleiri námskeið

Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins hefur gefið út bækling um námskeið á haustmisseri 2010. Fjölbreytt úrval er í boði, þeirra á meðal „Ráðagóðir kennarar“, námskeið byggt á hugmyndafræði hagnýtrar atferlisgreiningar, og „Skipulögð kennsla“, námskeið byggt á hugmyndafræði TEACCH líkansins.
Lesa meira

16. ágú. 2010

Reglur um félagsaðild

Á fundi stjórnar KÍ, föstudaginn 13. ágúst sl., voru samþykktar annars vegar reglur um félagsaðild í launalausu leyfi og hins vegar reglur um félagsaðild lífeyrisþega annarra en eftirlaunafólks.
Lesa meira

Lesa allar fréttir





Aukaval


Fagfélög


Leturstærð og tungumál


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli