Forsíða

Fréttir

16. maí 2013

Samþykkt frá Félagi framhaldsskólakennara um tillögur verkefnisstjórnar samráðsvettvangs um aukna hagsæld á Íslandi

Félag framhaldsskólakennara sendir frá sér samþykkt þar sem brugðist er við tillögum verkefnisstjórnar samráðsvettvangs um aukna hagsæld á Íslandi. Í samþykktinni er, m.a. fjallað um tillögur verkefnisstjórnarinnar um styttingu námstíma og til að sporna gegn brottfalli nemenda úr framhaldsskólum.
Lesa meira

15. maí 2013

Fulltrúar samráðsvettvangs um aukna hagsæld á fundi í Kennarahúsinu

Fulltrúar af samráðsvettvangi um aukna hagsæld komu til fundar við forystufólk KÍ í Kennarahúsinu í morgun. Tilefni fundarins var að ræða fram komnar tillögur verkefnisstjórnar samráðsvettvangsins um menntamál og framsetningu þeirra. Athygli hefur vakið að Kennarasambandið átti ekki fulltrúa í samstarfsvettvanginum þrátt fyrir að þar séu lagðar fram mikilvægar tillögur um skóla- og menntamála en KÍ hafði óskað eftir að taka þátt.
Lesa meira

15. maí 2013

Ályktun Kennarafélags MK Snúum vörn í sókn í málefnum framhaldsskólans

Í framhaldi af aðalfundi Kennarafélags Menntaskólans í Kópavogi 18. apríl sl. ályktar fráfarandi og núverandi stjórn félagsins eftirfarandi:

Kennarar Menntaskólans í Kópavogi eru orðnir þreyttir á langvarandi niðurskurði síðustu 5 ára og á andvaraleysi stjórnvalda gagnvart menntun, sem bitnar bæði á nemendum og kennurum.
Lesa meira

14. maí 2013

Vikupósturinn Jákvæð sálfræði og VERA að kenna! eftir Ívar Rafn Jónsson kennara við Framhaldsskólann í Mosfellsbæ

Ívar Rafn Jónsson skrifar Vikupóst FF að þessu sinni. Ívar kennir við Framhaldsskólann í Mosfellsbæ sem tók til starfa árið 2009 og starfar eftir nýrri námsskrá. Stefna skólans gerir ráð fyrir því að kennsluhættir einkennist af því að nemendur verði virkir þátttakendur í eigin námi og öðlist þannig sjálfstæði og frumkvæði.
Lesa meira

14. maí 2013

Félagsmenn FF hvattir til að taka þátt í TALIS

Aðalheiður Steingrímsdóttir formaður Félags framhaldsskólakennara sendir félagsmönnum sínum bréf þar sem hún hvetur þá til að taka þátt í TALIS-könnun í framhaldsskólunum sem nú stendur yfir. Safnað er gögnum um starfsaðstæður, starfsþróunarmöguleika og viðhorf kennara. Þrjátíu lönd taka þátt og sér Námsmatsstofnun um framkvæmdina á Íslandi.
Lesa meira

Lesa allar fréttir

 





Aukaval


Fagfélög


Leturstærð og tungumál


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli